Í gær var árshátíð MA haldin hátíðleg – sú skemmtilegasta sem ég hef farið á so far. Maturinn var delish, skreytingarnar voru æði, myndbandafélögin voru með stórkostlega fyndin video og voru tónlistaratriðin ekki af verri endanum, en þau voru Moses Hightower, Friðrik Dór <3 og 101 boys.
Ég ákvað að vera frekar látlaus þegar það kom að outfittinu og makeup-i
og var ég bara frekar ánægð með útkomuna, kjóllinn var alls ekki þröngur svo ég gat borðað eins og mig lysti án þess að finna fyrir óþægindum. Stór plús!
Pels: Gamall af ömmu minni
Kjóll: Missguided
Skór: New Look
Hálsmen: Vintage
Þetta earcuff pantaði ég af Asos um daginn.. og var það fyrsta pöntunin mín ever frá þeim(!!)
–
Einnig langar mig að deila með ykkur skemmtilegum myndum sem voru teknar af okkur vinkonunum (vantar þó eina), en það var ekki séns að ná einni mynd sem var “eðlileg”, en það gerir þær akkúrat svo skemmtilegar!
Að mínu mati amk…
x Melkorka
Skrifa Innlegg