fbpx

Viva Glam liturinn hennar Rihönnu

FallegtMACmakeupMakeup ArtistNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniSnyrtibuddan mín

Samstarf Rihönnu og MAC ætti ekki að hafa farið framhjá ykkur – alla vega ekki ykkur sem lesið síðuna mína. Nýjasta varan er nú mætt í verslanir en það er Viva Glam varalitur sem Rihanna hannaði.

Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað Viva Glam vörurnar snúast um þá rennur hagnaður af þeim óskiptur í Mac Aids fund. Svo um leið og þið kaupið ykkur fallegan varalit eða gloss þá styrkið þið gott málefni.

Sjálf hef ég reglulega keypt Viva Glam vörurnar og látið þannig gott af mér leiða og eignast nýja vöru í snyrtibudduna.
vivaglamUm leið og varaliturinn kom í Mac hér á Íslandi dreif ég mig útí Kringlu og keypti varalitinn. Það kom líka gloss og mig langar eiginlega bara líka í hann. Varaliturinn er alveg ofboðslega fallegur en hann er í köldum rauðum tón og það glampar alveg svakalega fallega af honum eins og þið sjáið á þessum myndum hér fyrir neðan sem ég tók í dagsbirtu.vivaglam4 vivaglam2Mér finnst ljóminn sem kemur á varirnar alveg einstaklega fallegu en glossinn er mjög svipaður en þar eru örfínar glimmeragnir sem grípa birtuna í kringum varirnar sem endurkastast þá fallega af þeim. Bæði varaliturinn og glossinn eru með þéttum lit og ég er bara með varalitinn á myndinni – enginn varablýantur. Hann  er búinn að seljast mjög vel svo ef þið girnist þennan lit þá mæli ég með að þið hafið hraðar hendur á :)

Ég notaði Mac eyelinerpensilinn sem ég skrifaði um HÉR til að bera litinn á og fá svona rúnaðar varir.

Þessi litur er must have að mínu mati og ég er ekki einu sinni mikið fyrir rauða liti! Hvernig líst ykkur á þennan?

EH

Aðeins það besta fyrir soninn

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Thelma

    18. February 2014

    Þessi er alveg ofboðslega fallegur!
    En svona afþví að ég er að commenta, hefur þú rekist á einhvern fallegan “must have” rauð/appelsínugulan frá MAC sem er alveg málið fyrir komandi vor sumar?

    Kv Thelma

    • Reykjavík Fashion Journal

      18. February 2014

      Ekki frá MAC sem ég man eftir í augnablikinu en það er einn æðislegur sem ég á frá Bobbi sem heitir Valencia Orange og er í Creamy Matte línunni sem eru einir af bestu varalitum sem ég á og ég bókstaflega sanka að mér litum úr þessari línu frá B.B. ;)

  2. Kolfinna

    18. February 2014

    hvernig finish er varaliturinn með? :)