fbpx

Leyndarmál Makeup Artistans: Hugsum út fyrir rammann

MACMakeup ArtistMakeup TipsReal TechniquesSnyrtibuddan mín

Þessi færsla hefur verið á leiðinni í birtingu í aðeins of langan tíma ég hef bara aldrei gefið mér tíma til að klára hana. En mig langar að segja ykkur frá nokkrum förðunarburstum sem ég nota kannski ekki alveg eins og vörulýsingarnar segja að við eigum að nota þá. Mig langar að hvetja ykkur til að hugsa aðeins útfyrir þessar lýsingar og láta ykkur detta eitthvað nýtt í hug með burstana. Maður þarf ekki að eiga milljón förðunarbursta sem eiga að geta gert allt. Stundum er bara gott að eiga nokkra góða sem er hægt að nota á marga ólíka vegu.

Hér eru fjórir af mínum uppáhalds burstum í augnablikinu og ég nota þá á allt annan hátt en ég „á“ að gera ;)
mac217brush1252822529MAC – Blending Brush #217

Algjör snilldarbursti til að blanda saman augnskuggum, hann er rúnaður svo hann smellpassar á augnsvæðið og nær nánast alveg frá augnhárum uppað globuslínu. Ég hins vegar nota hann í aðra hluti en að blanda saman augnskuggum – nota hann reyndar líka alveg í það á þónokkra af þessum bursta. Þessi er fullkominn í að bera hyljara á húðina og blanda honum saman við farða og jafna áferðina. Blöndunarburstar þurfa ekki endilega að vera til að blanda augnskugga það má nota þá í að blanda aðrar förðunarvörur saman líka :) Fullkominn undir augun, í kringum nefið, í kringum varirnar og á ýmis önnur svæði. Ef þið eigið þennan bursta – prófið hann í hyljarann!1-Powder-Brush-1 (1)Real Techniques – Powder Brush

Nú kem ég líklega með lýsingu á notkun á þessum bursta sem þið eigið eftir að gapa yfir. Þennan bursta er ég farin að nota í farða, bb krem, cc krem, primer – ég nota hann bara í allt sem viðkemur grunnförðun. Hárin í RT burstunum eru gerð til að hægt sé að nota þá í bæði blautar og þurrar förðunarvörur. Hárin í þessum bursta liggja svo þétt saman og hann er svo stór að maður er enga stund að bera á sig grunnförðunarvörurnar. Nokkrar strokur yfir andlitið og þá er það bara komið. Mér finnst ég líka nota minna af förðunarvörum í hvert sinn þar sem ég næ að dreifa svo vel úr vörunum með þessum bursta. Endilega prófið þetta – hvet ykkur til þess!mac_211brush001 MAC – Pointed Liner Brush #211

Þessi bursti er einn af mínum uppáhalds eyelinerburstum. Fyrir nokkru síðan fann ég bara engan hreinan varalitabursta og greip því í þennan eyelinerbursta til að bera á varirnar varalit. Áferðin var fullkomin, að bera litinn á gekk betur en nokkurn tíman áður. Lagið á burstanum er fullkomið til þess að móta varirnar um leið og varaliturinn er borinn á. Ef þið eruð hrifnar af því að vera með rúnaðar varir þá mæli ég með þessum bursta ég næ alltaf miðju efri varanna fullkomlega rúnuðum þegar ég nota þennan – eitthvað sem mér finnst ég ekki alltaf ná með þessum típísku varalitaburstum. En ég held að ástæðan fyrir því að það sé svo auðvelt með þessum bursta er sú að hann er hringlóttur sem auðveldar ásetninguna til muna.6-Setting-Brush-2Real Techniques – Setting Brush

Ég á 6 eða 7 stk af þessum bursta – ástæðan er einföld þetta er besti förðunarbursti sem ég á. Ég gæti gert heila förðun með þessum bursta einum að vopni. Að mínu mati er þetta sá bursti frá RT sem margar konur átta sig ekki alveg á hvað þær eiga að gera með – en það er einmit málið þið getið gert allt með honum, tja allt nema að gera eyeliner með spíss :) En að bera á farða, hyljara, púður, skyggja, kinnalit, augnförðun, varir og fullkomna áferð húðarinnar og fullkomna förðunina allt þetta get ég gert með þessum bursta. Þessi er ómissandi að mínu mati.

Hugsum út fyrir rammann og veljum það sem hentar okkur best en ekki það sem vörulýsingin segir okkur að gera!

EH

Lupita Nyong’o

Skrifa Innlegg

14 Skilaboð

  1. Helga

    16. February 2014

    snilld :) ég var að spá hvort þú gætir kannski gert vídjó eða færslu um hvernig er best að þrífa burstana sína?

    • Reykjavík Fashion Journal

      16. February 2014

      Já! Ég er að fara í tökur í vikunni fyrir nýju RT burstana – ætla að taka það upp í leiðinni ;) Alltof langt síðan ég lofaði því videoi hálfskammast mín :p

  2. Áslaug

    16. February 2014

    ég er alveg að fíla þennan litla bursta frá RT. Keypti nokkur stk og hann er snilld í að nota í blautan kinnalit, hyljara og til að blanda saman augnskuggum

  3. Dísa

    16. February 2014

    Ohhh geturdu gert kennslu í skyggingum;)

  4. Bryndís

    16. February 2014

    Hæhæ, ef þú ert að nota sama burstann í bæði blautan farða og þurran, hvernig er þá best að þrífa þá? :) þá á ég við RT burstana, ég fékk þannig burstasett í jólagjöf og elska þessa bursta og gaman að sjá að hægt að nota þá í annað! :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      16. February 2014

      Þrífur þá á sirka 6 vikna fresti ef þú ert bara að nota þá fyrir sjálfa þig er nóg – skolar þá uppúr volgu vatni og notar smá sjampó t.d. barnasjampó ég nota reyndar bara sjampóið sem ég er með í sturtunni hverju sinni. Ég nota alveg sama bursta í blautt og síðan beint eftir í þurrt – ég kemst upp með það með takloon hárunum sem eru á RT burstunum en alls ekki þegar burstarnir eru úr ekta hárum. En RT burstarnir eru allir úr gervihárum. Annars geturðu líka notað burstahreinsi til að þrífa burstana á milli vara – burstarnir þorna á sirka 15 mínútum eftir að þú notar hreinsinn :)

      • Anonymous

        18. February 2014

        Æðislegt, takk fyrir svarið :))!!

  5. Bryndís Ý

    17. February 2014

    Hvar fást RT burstanir?

    • Reykjavík Fashion Journal

      17. February 2014

      T.d. í Hagkaup, Lyfju, Lyf & Heilsu, Kjólum og Konfekt og á heimkaup.is. Í augnablikinu er reyndar mikið uppselt en það er sending á leiðinni til landsins sem mætir í næstu viku svo í byrjun mars verða allar búðir fullar af RT burstum meirað segja glænýju burstunum líka :D

  6. Ellen..

    18. February 2014

    Hvernig er best að þurka RT burstana?

    • Reykjavík Fashion Journal

      18. February 2014

      Bara leyfa þeim að þorna standandi í glasi eða á borði – það má alls ekki þurrka neina förðunarbursta á eh hátt með hita það er það eina sem má ekki:) Þá getur límið hitnað og þá losnar um hárin og burstarnir geta eyðilagst.