fbpx

Lupita Nyong’o

FashionFræga FólkiðmakeupTrend

Ég er alveg hrikalega skotin í leikkonunni Lupitu Nyong’o – sérstaklega stílnum hennar á rauða dreglinum undanfarið. Að mínu mati er þessi unga kona að slá í gegn á stóra tjaldinu og sem tískufyrirmynd.

Lupita fer með aukahlutverk í mynni 12 Years a Slave – ég hef ekki enn séð myndina en mig langar mikið að sjá hana. Það eina er að ég veit að það mun taka á að horfa á hana og mjög líklega munu nokkur tár falla en ég mun láta verða af því að horfa á hana fyrir Óskarinn.

Ég tók sama nokkur lúkk frá henni Lupitu á rauða dreglinum en mér finnst alltaf sérstaklega gaman að sjá förðunina hennar. Það er æðislegt hvað hún er óhrædd við að nota sterka og áberandi liti bæði í förðunarvali og klæðaburði.

lupita-nyongo-makeup-1 tumblr_mziuitJkyL1qhhxd4o1_500 3 lupita-nyongo-makeupAKonur með dökka húð ættu að vera óhræddar eins og Lupita við sterka liti – þeir fara þeim svo óskaplega vel að mínu mati. Ég er nú þegar orðin spennt að sjá förðunina og klæðnaðinn hennar Lupitu á Óskarsverðlaunahátíðinni en hún er tilnefnd fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir mynind 12 Years a Slave.

EH

Litrík Kvöldförðun

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Inga Rós

    16. February 2014

    Hún er algjört æði. Túrkiskjóllinn hennar er á toppnum á best dressed of the year hingað til.

  2. Hilrag

    20. February 2014

    nei þú bara verður að horfa á þessa mynd! hún er rosalega í henni líka

    mjög falleg kona/stelpa? haha.

    xx