fbpx

Svartar Varir…

FashionMACmakeupMakeup ArtistMakeup TipsNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniTrendVarir

Á næstunni mætir sjúk lína í verslanir MAC Kringunni sem nefninst Punk Couture. Í línunni eru alveg sjúklega flottar vörur sem ég hlakka til að sýna ykkir betur eftir helgi. Ein af þessum vörum er kolsvartur varalitur sem ég er sjúk í!

Stundum kemur eitthvað svona yfir mann – maður verður bara hreinlega að eignast einhverja vöru sem maður hefur ekki hugmynd um hvernig maður á að nota en hún er bara ómissandi eign! Svo núna er ég að detta í smá leit af innblæstri um hvernig ég gæti notað þennan lit. Það er náttúrulega svaka statement að vera með svartar varir og það eru alls ekki allir sem púlla það. Þetta er litur sem ég myndi segja að fara ykkur sem eruð með sterka contrasta í andlitinu sjúklega vel t.d. dökkt hár og ljós húð eða þið sem eruð mjög ljósar yfirlitum og þurfið eitthvað til að taka völdin í förðuninni ykkar og hrópa á athygli.

Það er líka must fyrir alla förðunarfræðinga að eiga einn svartan lit í settinu sínu. Það er bilað fashion að vera með svartar varir á tískusýningu eða í myndatöku svo er hægt að nota litinn í ýmislegt annað eins og að gera vamp varir eða dekkja varaliti.

Pönk þemað er rosalega áberandi núna það var það sérstaklega mikið á síðustu tískuvikum og þemað á síðasta Met Gala var pönk. Þetta er klárlega trend sem er að sækja í sig veðrið í förðunartrendum komandi árstíða og mér finnst það bara gaman!

Sumar farðanirnar hér fyrir neðan eru kannski ekki með alveg svörtum lit en þið getið náð öllum þessum dökkum litum með því að blanda í aðra liti með svarta litnum ;)

15058979973499092O10HpUjnc dd6b0d385cb439120c48bc9f9a03c1cd tumblr_mh1v0eVKtU1r181ggo1_500 black-lipstick black-matte-lips s3dark-lips-big-hat-cropped-028v5 swanny-black-white

Hér sjáið þið varalitina sem eru í Punk Couture línunni ég er nú þegar komin með þennan dökkrauða ég hlakka til að prófa hann og sýna ykkur útkomuna…..

MAC-punk-couture-lipstick

 

Ég ætla að ná einum svona svörtum í MAC í næstu viku – hvernig líst ykkur á??

EH

Nýtt á Íslandi: Gwen Stefani fyrir OPI

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Við erum einmitt búnar að vera með einn svartan í MAKE UP STORE í langan tíma sem heitir DAWN hann er æði og er alltaf að seljast upp aftur og aftur, ekkert smá vinsæll! :)

  2. Rut R.

    10. January 2014

    ohhhh Æðislega töff!
    mig er einmitt lengi búið að langa í svargráann….. kannski læt ég það eftir mér fljótlega :D

  3. Hulda Ösp

    11. January 2014

    Svo töff. Mig langar sjálfri sjúklega í svartfjólubláan varalit.

    • Elísabet

      13. January 2014

      Ég á einmitt Cyber frá MAC sem er svona svartfjólublár og ég elska hann!