fbpx

S&H

Ég Mæli MeðLífið MittMakeup ArtistMaybellineNýjungar í SnyrtivöruheiminumVarir

Ég fer vonandi ekki framhjá neinum sem flettir í gegnum nýjasta tölublað Séð & Heyrt. Þar eru myndir og smá viðtal við mig sem var tekið þegar ég kom fram sem gestakennari fyrir Maybelline á Konukvöldi Smáralindar og Léttbylgjunnar. Ég var fengin til að kenna nokkur einföld ráð til að nota varalit og kenna einföld trikk til að poppa aðeins uppá varirnar. Varalitirnir sem ég var að kynna eru nýjir litir hjá merkinu sem heita Color Sensational Vivids og þeir eiga það sameiginlegt að vera allir ofur bjartir og flottir og með þeim getið þið náð öllum lúkkunum HÉR.Ég er sérstaklega skotin í þessari mynd sem var tekin af mér á kvöldinu… það er nú ekki oft sem ég er fullkomlega ánægð með myndirnar mínar en hérna finnst mér ég voðalega fín – það eina er að ég er með helmingi styttra hár núna :DVivids litirnir eru hrikalega sterkir og flottir – eins og þið sjáið einmitt á handabakinu mínu hér, mæli hiklaust með þeim get þó ekki beint valið uppáhalds litinn minn því eins og þið ættuð að geta giskað á þá eru þeir allir til heima hjá mér öðru heimilisfólki til mikillar gleði.

Auk þess var tekið örstutt viðtal við mig sem þið getið séð hér:

Aftur langar mig að þakka öllum fyrir komuna – ótrúlega gaman að hitta lesendur í eigin persónu!

EH

Töff Barnavörur

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Helgi Ómars

    23. March 2013

    Heyrðu halló, þú átt heima í svona!! Pro pro pro, æði æði æðisleg þú ert!! xxx