fbpx

Innblástur – Bjartar Varir*

makeupTrendVarir

Það þarf nú ekki mikið til að fá mann til að lengja í sumarið – fallegir bjartir varalitir er það eina sem ég þarf….Í lokin verð ég að koma því á framfæri hvað mér finnst Emma Stone fullkomin með þennan bleika varalit.
Persónulega finnst mér miðað við það sem ég sé á stjörnunum okkar og á tískupöllunum að þá verða bleikir varalitir meira áberandi en síðustu sumur. Undanfarin sumur hafa það verið meira orange tónar sem tröllríða öllu en nú verður breyting á!

Að lokum langaði mig að svara öllum þeim sem spurðu mig um hvort ég vissi um einhvern varalit sem væri svipaður og Cara Delevigne var með á mynd sem ég notaði í færslu HÉR – þá er hann fundinn. Hann er úr nýju varalitalínunni frá Maybelline – Color Sensational Vivids og er nr 910 og heitir Shocking Coral.

EH

Ég*

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Iris

    21. March 2013

    Gosh varalitur nr 145, Shocking coral er líka mjög svipaður, var að bera hann saman við þennan frá Maybelline og er nánast eins. Er þó ekki mattur. Held hann sé enn til.

    • Snilld! En það er ekkert mál að matta niður varaliti – setur bara örþunnt lag af tissjú yfir varirnar eftir að þú ert búin að setja litinn á og púðrar svo yfir með ljósu eða litlausu púðri og voila! Liturinn er mattur ;)

    • Elísabet

      21. March 2013

      ég á shocking coral varalitinn frá gosh og mér finnst hann mun rauðari á vörunum heldur en þessi sem hún er með á myndinni.

  2. Fía

    21. March 2013

    fallegt!!

  3. Bergþóra

    23. March 2013

    Mig langar svo í einhvern svona ferskjulitaðan, svipuðum eins og er á mynd nr 4, ég hef ekki fundið þann eina rétta hingað til, geturu mælt með einhverjum? og takk fyrir yndislegt blogg, þú hefur gert mig að snyrtivörufíkli haha :)

  4. Bergþóra

    24. March 2013

    Snilld takk æðislega, ég tékka á þessu