fbpx

Töff Barnavörur

Lífið MittTinni & Tumi

Ein færsla fyrir mömmurnar – nauðsynlegt inná milli makeup póstanna. Það er ótrúlegt hvað áhugamálin geta breyst eftir barnseign. Áður fyr hékk ég á ebay og pantaði og pantaði allt mögulegt núna hangi ég á barnavörusíðum og mömmuhópnum mínum á facebook. Ég get ekki hætt að birta myndir af fallega syni mínum eða kaupa barnaföt – mér finnst þetta samt ekkert vandamál;) Tinni fékk ótrúlega flotta gjöf um daginn sem þið sjáið hér á myndinni fyrir ofan. Slefklútur, snuð og snudduband frá merkinu Elodie Details sem fæst í Fífu í Húsgagnahöllinni. Þetta eru ótrúlega skemmtilegar og flottar vörur sem henta vel t.d. í sængurgjafir eða bara tækifærisgjafir handa börnunum – minn fær reglulega svoleiðis ég fór t.d. hamförum á Bókamarkaðnum í Perlunni um daginn, sonurinn á núna allar Tinna bækurnar;)

Hér sjáið þið fleiri myndir af vörum úr línunni:

EH

RFF Makeup - Fyrir Hlé

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Helga Eir

    24. March 2013

    Úff ég fékk alveg sting í magann þegar ég sá Leopard pokann! Æðislegur :) Verð að eignast hann…