Ég veit ekki með ykkur en ég er gjörsamlega að missa mig yfir pastellituðum naglalökkum – ég stefni á það að reyna að vera með fallega pastelliti á nöglunum í allt sumar. Mér datt í hug að taka saman smá úrval af pastellituðum naglalökkum sem eru í boði fyrir okkur. Reyndar varð ég að lauma Essie lökkunum með en það er svo sem auðvelt að nálgast þau sérstaklega ef þið eruð duglegar að ferðast. En Essie er liggur við til í öllum löndum nema hér…Litirnir eru frá vinstri í efstu línu:
- OPI Where Did Suzi’s Man Go úr Brazil línunni.
- Dior nr. 204 Porcelaine úr vorlínu merkisins.
- Essie Go Ginza.
- L’Oreal nr. 851, Nouvelle Vague úr nýju pastellínunni.
- OPI I love Applause úr Muppets línunni sem er næsta lína sem kemur í sölu – vonandi líka hjá okkur.
- Dior nr. 457 Bouquet úr vorlínu merkisins.
- L’Oreal nr. 855, Oyster Bay úr nýju pastellínunni.
- L’Oreal nr. 852, Pistachio Drage úr nýju pastellínunni.
- L’Oreal nr. 850, Lemon Meringue úr nýju pastellínunni.
- L’Oreal nr. 854, Golden Coquillage úr nýju pastellínunni.
- Essie Resort Fling.
- YSL nr. 48 Rose Scabiosa úr vorlínu merkisins.
- OPI Chillin Like A Villain líka úr Muppets línunni.
Hér er svo bláa lakkið frá Dior – hann er samt mun dekkri á myndinni – hún heppnaðist ekki alveg nóg vel.., ;)
Hér er ég með fjólubláa pastel lakkið frá L’Oreal nr 851 – Nouvelle Vague
Mér finnst pastel litir alveg ótrúlega fallegir og skemmtilegir, þeir lífga svo sannarlega uppá skapið og ég er meirað segja farin að lauma nokkrum pastellituðum flíkum í innkaupapokana mína;)
Ég vona að þessi færsla hafi hjálpað ykkur sem eruð í pastel innkaupahugleiðingum :)
EH
Skrifa Innlegg