fbpx

Mín förðun í Nýju Lífi

FashionLífið MittMakeup ArtistMitt Makeup

Fyrir stuttu síðan var mér boðið með stuttum fyrirvara að vera með í myndaþætti fyrir Nýtt Líf. Ég auðvitað sló til og eyddi heilum sunnudegi í Epal með frábæru fólki. Útkomuna sjáið þið í nýjasta tölublaði Nýs Lífs sem ég mæli svo sannarlega með því að þið nælið ykkur í eintak því það er margt meira spennandi í blaðinu. nýttlífmyndaþáttur4 nýttlífmyndaþáttur3 nýttlífmyndaþáttur2 nýttlífmyndaþáttur

MARGT BÝR Í ÞOKUNNI

Ljósmyndari: Rafael Pinho
Stílisti: Anna Clausen
Förðun & Hár: Erna Hrund Hermannsdóttir
Fyrirsæta: Sara Karen frá Eskimo
Aðstoð: Antonía Bergþórsdóttir
Sérstakar þakkir fær Epal

Það er svo gaman að sjá vinnuna sína svona á prenti – maður verður pínu montinn. En pælingin hér var að vera með dáldið náttúrulega og matta förðun sem er dáldið skemmtileg tilbreyting frá svona þessari glans áferð á húð sem hefur verið svo rosalega áberandi í myndaþáttum undanfarið. Ég er reyndar mjög hrifin af glansandi áferð á húð en það er gaman að breyta til stundum :)

EH

 

Leyndarmál Makeup Artistans: Einfalt en virkar;)

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Helga Katrín

    3. April 2014

    Keypti mér þetta blað og fannst förðunin geggjuð og passa vel við fílinginn í myndþættinum !