fbpx

Maskari sem fær augnhárin til að vaxa

AuguGoshmakeupMakeup ArtistMaskararNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniSnyrtibuddan mínTREND ALERT

Já þið lásuð rétt. Þessum maskara er ég búin að bíða spennt eftir í næstum því ár eða frá því ég sá fyrst auglýsingu um hann í dönsku tískutímariti.

Maskarinn er frá danska merkinu Gosh og heitir Mascara Allongeant og er maskari sem á að fá augnhárin til að vaxa. Maskaraformúlan inniheldur serum sem örvar hárvöxtinn og kemur af stað vexti í þeim hárbelgjum í kringum augun okkar sem eru ekki virkir. Það hafa nokkur merki komið með svona maskara en ég verð þó að segja að mér líkar best við þennan. Helsti kosturinn er að sjálfsögðu sá að hann er með gúmmíbursta. Ég er eiginlega bara orðin þannig að ég vil helst bara gúmmíbursta. Mér finnst svo þægilegt að geta stjórnað vel útkomunni á augnhárunum mínum.

Athugið að ég er með eina umferð af maskaranum á augnhárunum.

goshserummaskari8

Greiðan minnir mig mikið á greiðuna á uppáhalds Gosh maskaranum mínum sem heitir Catchy Eyes nema sá bursti er sveigður.

goshserummaskari6 goshserummaskari4 goshserummaskari5

Hér sjáið þið maskarann sem er nú tiltölulega látlaus – það fer alla vega ekki neitt fyrir honum og hann grípur ef til vill ekki athyglina þegar þið farið útí búð að skoða maskara. En ég mæli alveg með honum. Við hlið hans sjáið þið svo svipaða vöru – augnháraserum.

goshserummaskari

goshserummaskari9

Serumið kemur með örmjóum pensli sem þið notið til að setja serumið á við rót augnháranna. Þið getið að sjálfsögðu líka sett formúluna yfir öll aunghárin það er alls ekkert að skemma fyrir.

Serumið er gott að setja á hrein augnhár á næturna fyrir svefninn til að örva vöxt háranna á meðan þið sofið. Einnig getið þið notað það undir maskarann eða bara undir hvaða maskara sem er.

goshserummaskari10

Serumið er líka hægt að nota til að örva hárvöxt annars staðar í andlitinu eins og hárvöxtinn í augabrúnunum okkar. Snilld að vita af svona vöru ef þið ef til vill takið einhver tíman aðeins of mikið af þeim.

Nú þarf ég klárlega að fara að nota minn meira til að sjá hvort það verði einhver árangur. En þetta er hiklaust maskari sem þið sem eruð með þunn augnhár eigið að nota eða hafið lent í því að missa augnhár undanfarið. Serumið örvar ekki bara vöxt augnháranna sem eru fyrir heldur fær það líka hina hárbelgina sem eru til staðar til að hefja vöxt á hárum. Mig minnir að tölfræðin segi að við séum með að meðaltali virkan hárvöxt í 30% af augnhárabelgjunum okkar. Ég veit ekki með ykkur en ég vil miklu meira en það :)

goshserummaskari11

Þetta er maskari sem gefur mjög náttúruleg og falleg augnhár en með því að setja ef til vill fleiri umferðir er hægt að auka umfang augnháranna margfalt. Helsti kosturinn við að nota maskara með gúmmíbursta, er augnhárin klessast ekki sama þó maður setji 3 eða jafnvel 5 umferðir af maskara!

Gosh vörurnar fáið þið t.d. í Hagkaupum og Lyfju :)

EH

Nýtt í fataskápnum

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Kristín Ingibjörg

    7. January 2014

    Svo virkar nú líka að blanda saman vítamín E olíu og laxerolíu og bera á augun þegar maður fer að sofa :)

  2. loa

    7. January 2014

    Er mikill ilmur af þessum bursta/og næringu?
    ég á pínu vandræðum með maskara sem ilmar of mikið, það ertir tárakirtlana, þ.a það endar alltaf með hrynjandi tárum :(

  3. Rut R.

    7. January 2014

    Mig langar svo að spurja þig um Master Precise blauta eyelinerinn frá Maybelline…

    ég verslaði mér hann fyrir áramótin, svo þegar ég fer að nota hann, þá kemur alveg ægilega lítið úr honum og hann nánast strokaði bara út það litla sem ég gat notað hann… þannig að ég endaði á að notast við gamla eyelinerinn minn… Er ég bara klunni eða hvað…. hefur þú prufað þennan eyeliner?

    kv. Rut

    • Reykjavík Fashion Journal

      7. January 2014

      Já og hann er uppáhalds eyelinerinn minn og sá besti sem ég hef prófað sinnar tegundar. Þessi lýsing sem þú gefur upp passar engan vegin við hann. Þú hlýtur eiginlega að hafa fengið gallað eintak. Hefurðu prófað að þrýsta svampinum á handabakið og sjá hvort það komi eithvað útúr honum?

      • Rut R.

        8. January 2014

        já ég var einmitt að hugsa hvort ég hafi akkurat fengið gallað eintak….
        En ég prufa fyrst að þrýsta og ath hvort það komi einhver litur :D

        takk takk :D

  4. Guðrún

    9. January 2014

    Spennandi að vita hvort þessi maskari virkar eitthvað. Hvernær ætti maður að sjá árangur? Viltu leyfa okkur að fylgjast með þínum árangri?