fbpx

Einir af bestu augnskuggum sem ég hef prófað!

AugnskuggarAugulorealmakeupMakeup ArtistSnyrtibuddan mín

Eins og frægt er orðið þá féll ég fyrir eftirlíkingu af Urban Decay Naked 2 pallettunni – það mun aldrei gerast aftur og ég er nú algjörlega komin með nóg af verslunum sem gera það að sýnu lifibrauði að blekkja neytendur.

Elskuleg vinkona var svo yndisleg að lána mér UD pallettuna sína svo ég gæti fengið að prófa augnskuggana og ég verð að vera ykkur hjartanlega sammála – þetta eru einhverjir bestu augnskuggar sem ég hef prófað. Það liggur við að þeir sjái um augnförðunina sjálfir svo auðveldlega leggjast þeir á augnlokin. Ég skemmti mér konunglega fyrir frama spegilinn í gær að prófa augnskuggana og hér sjáið þið útkomuna. Fyrir neðan hef ég svo skrifað smá lýsingu á förðuninni og þar finnið þið líka mynd af hinum vörunum sem ég notaði.

urbanekta8urbanekta6Það er alveg magnað að sjá hvað augnskuggarnir blandast fallega saman hver við annan. Það sést einmitt mjög vel þegar ég er með lokuð augun. urbanekta3Hér sjáið þið svo vörurnar sem ég notaði:

  • Garnier Perfect Blur Smoothing Perfecting Primer – BESTI primer sem ég hef prófað. Þessi kom heim með mér frá Svíþjóð og ég er loksins búin að finna hinn fullkomna primer. Þessi er væntanlegur í sölu hér á Íslandi seinna á árinu og þá segi ég ykkur betur frá honum.
  • L’Oreal Volume Million Lashes So Couture maskari – glænýr maskari sem verður fáanlegur innan skamms á Íslandi. Ég verð að segja að þetta er besti L’Oreal maskarinn sem ég hef prófað.
  • L’Oreal Lumi Magique Concealer – Léttur hyljari með ljómaáhrifum sem er gott að nota líka sem highlighter yfir farðann.
  • L’Oreal Color Riche Le Kohl – Mattur vaxblýantur sem er fínt að nota til að fylla aðeins inní augabrúnirnar. Þessi litur er þó aðeins of ljós fyrir mig en ég fann ekki minn lit svo þessi varð að duga.
  • Urban Decay Naked 2 pallettan – sjúklegir litir, þessa verð ég að eignast!
  • Chanel Rouge Coco varalitur í litnum Mystique.

urbanekta

  • Ég byrjaði á því að móta það hverni ég ætlaði að enda augnförðunina svo ég grunnaði ytri enda augnloksins með svarta matta litnum. Ég vann litinn inn eftir globuslínunni þangað til hann var orðinn mjúkur og fallegur.
  • Svo setti ég litinn pistol sem er 5. frá hægri, steingrár sanseraðaur augnskuggi og setti hann yfir hálft augnlokið og vann hann þvert yfir globuslínuna.
  • Svo tók ég litinn Chopper sem er 4. litur frá vinstri og setti hann á innri hluta augnloksins og í augnkrókinn og vann hann yfir mitt augnlokið.
  • Svo tók ég stóran blöndunarbursta og vann alla litina vel saman og mýkti aðeins skygginguna að ofan til að fá fullkomna smokey áferð. Þið gætuð líka notað ljósasta litinn Poky til að mýkja skygginguna.
  • Svo setti ég eyelinerlínu með svarta litnum meðfram efri augnhárunum og næst dekksta litinn 2. frá hægri meðfram neðri augnhárunum og blandaði saman við rósagyllta litinn.
  • Svo var bara sett nóg af maskara…!
  • Ég hefði svona eftir á kannski átt að nota meiri volume maskara og jafnvel setja brúnan lit inní vatnslínuna þá held ég að lúkkið hefði verið fullkomið.

urbanekta2Ég ætla svo sannarlega að gera annað lúkk með þessari pallettu á næstunni en ég þarf ekki að skila henni fyr en á mánudaginn ;)

Þið sem hafið verið að senda mér athugasemdir hafið vísað á síðuna Beauty Bay til að kaupa Urban Decay vörurnar. Ég ætla að fara að ykkar ráðum og panta pallettuna þar og jafnvel fleiri vörur frá merkinu – langar dáldið líka í Naked 3 pallettuna. Eru einhverjar hér sem eiga hana og mæla með henni ?

Takk fyrir hjálpina enn og aftur yndislegu lesendur – þið hafið hárrétt fyrir ykkur með þessa augnskugga og ég get ekki annað en mælt heilshugar með því að sem flestir prófi þá. Klárlega einhverjir bestu augnskuggar sem ég hef prófað!

EH

p.s. Takk Inga fyrir lánið***

Hreint skyr & súkkulaði Stevía

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

15 Skilaboð

  1. Sandra

    7. February 2014

    Æðislegir augnskuggar, þarf klárlega að tjékka á þeim!
    – og myndirnar koma hrikalega vel út, þetta er allt annað! ;)

    • Reykjavík Fashion Journal

      7. February 2014

      haha takk! Loksins gafst færi á að taka myndir í dagbirtu þegar sonurinn var sendur veikur heim frá dagmömmunni! Svo þá nýtti mamman tímann vel ;) En já vá þessa máttu ekki láta framhjá þér fara!!

  2. Áslaug

    7. February 2014

    spennt fyrir þessum maskara. Hvernig er hann? Eff maður fílar ekki oginal million lashes er þá þessi eittthvað fyrir mann??

    • Reykjavík Fashion Journal

      7. February 2014

      Ójá – ég er ein af þeim sem finnst upprunalegi mjög fínn en kannski ekki endilega uppáhalds – þessi bursti er miklu fallegri og minnir meira á pena útgáfu af Rocket maskaranum frá Maybelline ;) Þessi er væntanlegur eftir nokkrar vikur :)

  3. Inga

    7. February 2014

    Minnsta málið! Gaman að geta hjálpað til. :) Ekkert vera að stressa þig að skila pallettunni, leiktu þér bara með hana áfram. :)

  4. Elín Erna

    7. February 2014

    Ég var að fá Naked 3 í hendurnar og er mjög ánægð með hana! Á allar þrjár og þessi er klárlega uppáhalds x

  5. ..

    7. February 2014

    Lang besta augnskugga paletta sem ég hef átt! Teygi mig alltaf í hana og lúkkið verður alltaf fullkomið!

  6. Kristín R.

    8. February 2014

    Hvar getur maður keypt þessar pallettur?

  7. Þyrí

    8. February 2014

    Betri en Mac??
    Þeissi palletta er MJÖÖÖg falleg btw :-)

    • Reykjavík Fashion Journal

      8. February 2014

      Þeir eru á topp 5 listanum mínum alla vega – með MAC að sjálfsögðu – nokkrar augnskuggategundir sem ég get ekki gert uppá milli:)

  8. Þórunn

    9. February 2014

    Vitiði hvað svona palletta kostar – með öllum tollum og gjöldum ?
    Langar rosalega í svona ;)

  9. Maren

    21. February 2014

    Ég var mjög spennt að prófa en frekar svekkt þegar ég notaði svarta litinn, hann hrundi svo svakalega að ég þurfi að þvo mér undir augunum og setja aftur farða þar. En litirnir eru mjög fallegir og mjúkir, mér finnst MAC samt betri (á t.d. svartan frá MAC sem hrynur ekkert). Ég keypti pallettuna btw í Urban Decay í Debenhams í UK svo hún er ekki feik.

  10. Andrea Jónsdóttir

    20. March 2014

    Ég er einmitt ný búin að kaupa þessa pallettu og hún er æði. Allir litirnir eru svo fallegir og passa allir saman.