Ég er svo skotin í þessari fallegu augnskuggapallettu frá Bobbi Brown. Muniði eftir pallettunni frá merkinu sem var bara hægt að kaupa í flugvélum Icelandair – þessi minnir mig dáldið á þá pallettu. Hún er ekki fáanleg lengur en ég á reyndar mína ennþá og ég tími alls ekki að losa mig við hana þó skuggarnir séu löngu runnir út á tíma. Mér finnst þessi palletta bara svo klassísk og flott og litirnir eiga alltaf við og ég notaði þá mikið.
Ég er sjálf mjög skotin í vörunum frá Bobbi Brown og líka henni sjálfri og hennar sýn á merkið, vörurnar og konurnar sem hún er að reyna að höfða til. Þessi palletta kom sem hluti af Chocolate Obsession línunni sem er tiltölulega nýkomin í verslanir. Hún er víst alveg að seljast upp svo ég verð að fara að hafa hraðar hendur ef ég ætla að eignast hana.
Hér sjáið þið þessa gersemi!
Þetta eru litir sem ég sé fyrir mér að geta notað ótrúlega mikið – glimmeraugnskugginn í miðjunni finnst mér fullkomna pallettuna og eykur fjölbreytni augnskugganna. Þarna eru skuggar með öllum áferðum – hvað meira þarf maður. Það er reyndar ekkert að marka mig ég er ekki eins og aðrir því ég fæ aldrei nóg;)
Svo að sjálfsögðu er hér andlit merkisins, Katie Holmes, förðuð með vörum úr línunni og að sjálfsögðu skuggum úr pallettunni fallegu. Hér er hún eins og ég sýndi ykkur í gær með brúntóna förðun og fallegan bleikan lit í kinnunum til að gefa andlitinu meira líf!
EH
Skrifa Innlegg