fbpx

Vinnuferð

Lífið MittmakeupMakeup ArtistMaybellineReal Techniques

Þessa stundina er ég stödd á Akureyri í stuttri vinnuferð. Í tilefni Dömulegra Dekurdaga á Akureyri verð ég inní Hagkaup í dag og á morgun með kynningar fyrir Real Techniques og Maybelline.

Maybelline_RealTecniques

Ég er mjög spennt fyrir því að eyða helginni útá landi – það er alltof langt síðan síðast og ég ætla að njóta þess í botn. Ég vona að veðrið verði nú gott þar sem mig langar eiginlega bara að rölta um bæinn og njóta fríska loftsins á milli þess sem ég stend inní búð:)

Ég hvet sem flestar til að koma og kíkja á mig – sérstaklega ef þið eruð nú að pæla í RT burstunum. Ég get ekki mælt nógu mikið með þeim og gæti þá rálagt ykkur hvaða bursta þið ættuð að eiga sem henta þá ykkar daglegu förðunarrútínu:)

Sjáumst á Akureyri!

EH

Fallegar flíkur fyrir haustið

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Andrea Röfn

    11. October 2013

    Góða skemmtun og gangi þér vel <3 langar svooo út á land!