fbpx

@vilaclothes_iceland sigurvegarar!

FashionLífið MittStíll

Þá er loks komið að því að ég sýni ykkur uppáhalds myndirnar úr Instagram leiknum mínum og uppáhalds búðarinnar VILA. Það var ótrúlega gaman að fylgjast með myndunum sem komu inn og sérstaklega gaman að sjá hvað var greinilega mikið pælt í mörgum þeirra. Ég fékk allt í einu ótrúlega frestunaráráttu þegar kom að því að velja myndir og ég hefði viljað velja þrjár í viðbót að minnsta kosti. En ég varð að gera uppá milli… Hér sjáið þið margar af mínum uppáhalds en hér neðan eru sigurmyndirnar þrjár…

vilainstaollage

Eigendur fyrstu myndanna tveggja fá Just Jute buxur að eigin vali…

photophoto 1-10

Til hamingju @saerunosk og @arnairis. Ég get lofað ykkur því að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessar frábæru buxur sem ég dýrka og dái sjálf. Þær eru alveg tilvaldar í haustfataskápinn en fyrir stuttu komu fullt af nýjum þvottum í buxunum svo það verður úr nægu að velja.

Hér er svo myndin sem ég vil verðlauna með 20.000kr gjafabréfinu….

photo 2-10

Til hamingju @rannveigjonina! Ég vona innilega að þú eigir eftir að geta nýtt þér gjafabréfið og fengið þér fallegar flíkur. Mér fannst þessi mynd svo skemmtileg og ekki skemmdi fallega pilsið fyrir – en eitt svona á einmitt líka heima í mínum fataskáp;)

Ég mæli svo með því að þið haldið áfram að fylgjast með þessari uppáhalds búð minni á Instagram @vilaclothes_iceland – svo þið missið nú örugglega ekki af því þegar flottu haustvörurnar halda áfram að fylla búðirnar.

Takk fyrir frábæra þáttöku – sigurvegararnir geta nálgast vinninginn sinn í verslun VILA í Kringlunni!

EH

Lakk fyrir varirnar

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Rannveig Jónína Guðmundsdóttir

    12. August 2014

    Vá yndislegt!!

    Takk kærlega fyrir mig :D