fbpx

Verðlaunahafar – Bestu snyrtivörurnar

Jólagjafahugmyndirmakeup

Þegar ég kallaði eftir ykkar áliti á bestu snyrtivörunum langaði mig að gera eitthvað um leið fyrir lesendur mína. Ég ákvað því að skella í smá leik um leið og verðlauna eigendur 5 athugasemda með smá glaðning svona rétt fyrir hátíðirnar.

Verðlaunin í þessum leik eru gjafaöskjur frá Maybelline sem innihalda The Rocket Volum’Express maskarann og Master Precise blauta eyelinerinn sem er að mínu mati einn sá besti á markaðnum í dag! Hér sjáið þið hvernig gjafaaskjan lítur út:1463582_587696224599681_537643127_nÉg notaði „random number generator“ til að velja fyrir mig sigurvegarana. Í þetta sinn eru það þessar skvísur sem fá glaðning:

  • Karen Ýrr sem sagði m.a. að uppáhalds eyelinerinn sinn væri Maybelline eye studio lasting drama gel eyeliner.
  • Freyja sem sagði m.a. að besti maskarinn væri High Impact maskarinn frá Clinique.
  • Ragna Björk sem sagði m.a. að besta fljótandi farðinn væri Chanel Vitalumiere Aqua.
  • Íris Ósk Vals sem sagði m.a. að Dior Iconic maskarinn væri sá besti sem hún hefur prófað í langan tíma.
  • Herdí sem sagði m.a. að besta BB kremið væri kremið frá Gosh

Þið megið svo endilega senda mér línu á ernahrund(hjá)trendnet.is með fullu nafni og heimilisfangi svo ég geti sent glaðninginn til ykkar.

Takk kærlega fyrir að taka þátt!

EH

Á óskalistanum: Shoe the Bear

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Lilja Ósk Sigurðardóttir

    21. November 2013

    BB kremið frá Gosh leynir á sér og kom skemmtilega á óvart með litum fyrir mjög ljósa húð yfir í dökka.