Ég geri mér vel grein fyrir því að snyrtivöruverð á Íslandi hafa hækkað í gegnum árin. Undanfarið hefur verið mjög vinsælt að versla snyrtivörur á netinu, þá vil ég sérstaklega taka Ali Express sem dæmi. Ég hef sjálf verslað snyrtivörur á netinu (reyndar aldrei á Ali Express bara eBay). Ég fer reyndar mjög varlega í þetta og versla í dag bara merki sem ekki fást á Íslandi, þá oftast bara til að svala forvitini minni. Áður en ég kaupi eitthvað les ég mér vel til um vöruna og reyni að ganga úr skugga að um alvöru vöru sé að ræða. Að líta á verðið er besta ráðið sem ég get gefið ykkur til að vita hvað er eftirlíking og hvað ekki. Verðið kemur alltaf upp um vöruna, ef það er hlægilega ódýrt er líklegast að um eftirlíkingu sé að ræða.
Áður fyrr var ég mun kærulausari og hef keypt eftirlíkingar. Þau mistök mun ég þó aldrei gera aftur. Reyndar er ég nær alveg hætt að kaupa snyrtivörur af netinu núna af því mér finnst gott úrval af snyrtivörum hér á Íslandi. Ef ég versla snyrtivörur á netinu þá geri ég það oftast í gegnum eBay. Ég hef eina mjög stranga reglu: ég versla aldrei vörur frá Asíu.
Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst þessi að þar er ofboðslega mikið um eftirlíkingar sem er að sjálfsögðu ólöglegt að flytja inn til landsins. Mér finnst líka mjög gróft þegar um er að ræða beinar eftirlíkingar. Eftirlíkingar af MAC snyrtivörum eru algengastar, það er ekki skrítið þar sem MAC er vinsælasta snyrtivörumerki í heiminum í dag. Með beinum eftirlíkingum á ég við þær vörur sem eru gerðar með því markmiði að blekkja neytandann og láta hann halda að hann sé að kaupa eitthvað annað en hann heldur. Oft er hægt að sjá þetta á logo-um á vörunum sjálfum en stundum er bara lítill sem enginn munur á umbúðunum – öðru getur gegnt um innihaldið. Ég hef heyrt ógeðslegar sögur um efni sem hafa leynst í eftirlíkingum af snyrtivörum sem ég vil engan veginn að komist í snertingu við húðina á mér. Ef þið verslið vörur á netinu sem reynast vera eftirlíkingar og eitthvað kemur fyrir í kjölfar notkunar á þeim er enginn sem stendur á bakvið þær sem getur gefið ykkur skýr svör um hvað hefur gerst eða afhverju. Það er mjög líklegt að sá eða sú sem seldi ykkur vöruna svari aldrei póstum frá ykkur en í staðin njóti þess að hafa náð að nappa peningunum ykkar.
Dæmi um beina eftirlíkingu sem er gerð til þess að blekkja lesanda. Þessar vörur eru nánast eins…. eftirlíkingin er hægra megin, alvöru varan er vinstra megin. Ef þið horfið vel á vörurnar þá sjáið þið að letrið er mjórra á eftirlíkingunni.
Annað sem mig langar að nefna er að í Asíu er verið að selja helling af snyrtivörum sem má varla kalla snyrtivörur, það eina sem er gert er að annað hvort er sett logo frá fínu merki eða litagleðin höfð í hámarki. Gott dæmi um lélegar og illa gerðar litaglaðar snyrtivörur eru kínapalletturnar svokölluðu, þessar sem eru með nokkrum tugum augnskugga í öllum regnboganslitum. Ég hef heyrt sögu um að skipamálning hafi eitt sinn fundist í einum augnskugga í svoleiðis pallettu – já nei takk. Mér myndi ekki detta í hug að setja þetta á andlitið á mér eða leyfa nokkrum í kringum mig að gera það.
Dæmi um kínapallettur sem er merkt með logo-i frá þekktu snyrtivörumerki og burstasett. MAC er með hvorugt í sölu. Logoið sjálft sér um að selja vörurnar til grunlausra neytenda sem halda að þeir séu að kaupa eitthvað alvöru.
Ég verð svo að fá að minna á færsluna mína um fölsuðu burstasettin sem þið finnið HÉR. Mér blöskraði um daginn þegar ég rakst á Facebook auglýsingu þar sem var verið að selja burstasett frá merkjum eins og MAC og Bobbi Brown á verðum sem sjást ekki í verslunum sem selja merkin hér á landi. Bara svo það sé á hreinu þá koma aldrei burstasett nema í kringum hátíðirnar frá MAC og þau innihalda aldrei svona mikið magn af burstum. Það sama má segja um Bobbi Brown, reyndar er hægt að fá lúxusburstasett hjá merkinu en það kostar smá pening. Mig langar að biðja ykkur um að reyna eftir fremsta megni að styðja ekki við þennan eftirlíkingar bransa hér á landi. Þetta getur komið slæmu orði á þessi snyrtivörumerki sem er verið að herma eftir og eins og ég segi hér fyrir ofan að ef vörurnar skaða ykkur á einhvern hátt, þið fáið útbrot eða einhvers slags ofnæmi fyrir þeim, þá er fátt um svör.
Það er líka mikið um eftirlíkingar af ilmvötnum, getið þið spottað hvort er alvöru?
Ég hvet ykkur til að velja alltaf gæði fram yfir verð. Það er rosalega gott úrval af snyrtivörumerkjum hér á landi, þau eru á ýmsum verðum en við verðum að velja það sem hentar okkur og húðinni okkar best. Fyrir ykkur sem viljið lífrænar snyrtivörur þá er líka mjög gott úrval af þeim og það er sífellt að aukast í takt við mikla vitundarvakningu kvenna á síðustu árum – við pælum miklu meira í því hvað er í vörunum sem við setjum á húðina okkar og mér finnst það bara frábært. Mér finnst líka mjög gaman að fylgjast með því að það er ekki einungis vitundarvakning meðal neytenda heldur er hún líka meðal framleiðenda. Svo ég taki nú dæmi þá var erfitt að finna maskara fyrir áratug síðan sem ekki innihélt nikkel en í dag er sagan allt önnur og það finnst varla maskari sem inniheldur nikkel. Mikil fjölgun hefur verið á svokölluðum „no nasties“ förðunarvörumerkjum í heiminum, nokkur þeirra hafa ratað til landsins en því miður ekki nógu mörg.
Eftirlíkingar af vörum frá Benefit eru líka algengar og munu bara aukast í takt við vinsældir merkisins.
Það er ýmislegt hægt að gera til að spara sér smá pening, margar aðrar leiðir en að versla í gegnum netið HÉR tók ég einmitt sama nokkrar leiðir. Nýtið ykkur tilboð, það eru reglulega Tax Free dagar í Hagkaupum, núna fyrir jólin komu snyrtivörumerkin með sérstaka gjafakassa í sölu. Það eru eflaust nokkrir ennþá til. Ef þið kaupið gjafakassa þá eruð þið að fá meira fyrir minna. Það er gaman að gera stundum vel við sig og ég hvet ykkur endilega til að leyfa ykkur að kaupa dýrt krem eða dýran maskara í t.d. þriðja hvert skipti ef hagur leyfir.
Ég ákvað kíkja inná Ali Express núna til að sjá hvað væri í boði þar. Á fyrstu síðunni sá ég eftirlíkingar af vörum frá Urban Decay, MAC, Maybelline, Sigma, Beautyblender og að sjálfsögðu nokkrar kínapallettur.
Hér sjáið þið dæmi um eftirlíkingu af Urban Decay augnskuggapallettu. Nokkuð gott ekki satt?
Ég vona að þessi færsla mín veki einhverjar til umhugsunar það er mikilvægt að vera með staðreyndir málsins á hreinu.
EH
Skrifa Innlegg