fbpx

Veislumæðgin

DiorLífið MittMaybellineTinni & Tumi

Það var nóg að gera hjá litlu fjölskyldunni um helgina en á sunnudaginn var okkur boðið í 2 veislur og við mættum að sjálfsögðu hress og kát. Í einni veislunni náðist þessi fína mynd af mér og mola. Hafiði nokkuð séð fallegra barn! ;)

Þegar þið rýnið í myndina má sjá eitthvað sem einkennir mjög margar nýjar mæður – fráhneppta skyrtan en ég var nýbúin að gefa Tinna og stundum vantar vit í kollinn til þess að muna að hneppa skyrtunni aftur!

Svo finnst mér húðin mín sérstaklega falleg svona ef ég segi sjálf frá en hún er Diorskin Nude BB kreminu að þakka og naglalakkið er nýtt frá Maybelline tegundin er Superstay og liturinn er Mint for life. Tinni sæti er svo í fötum sem hann fékk í sægurgjöf frá uppáhalds vinum sínum í franska landinu***

EH

Diane Kruger fyrir Chanel

Skrifa Innlegg