Ég prófaði ótrúlega skemmtilegan varalitagloss um daginn frá Yves Saint Laurent. Varan nefnist Glossy Stain hún gefur ljóma eins og gloss, þéttan lit eins og varalitur og endingu eins og superstay varalitir. Pensillinn er oddmjór svo það er auðvelt að bera hann á og móta varirnar um leið. Litinn er hægt að þétta og dekkja með því að bera fleiri umferðir á varirnar.Ég er með lit nr. 5 – Rouge Vintage – sem mér finnst smellpassa fyrir haustið. Fullkominn við brún augu og ljósa húð!
Fullkomnar sunnudagsvarir ;)
EH
Skrifa Innlegg