fbpx

Tískubók!

Ég Mæli MeðLífið Mitt

Ég fékk að kynnast ábyrgðinni sem fylgir því að vera móðir í gær – deginum sem átti að vera eytt í sveitabrúðkaupi hjá frænda mínum var í staðin eytt upá Læknavakt og svo Barnaspítala. Tinni Snær er sem betur fer mun hressari í dag og hitalaus :) Okkur er boðið í annað brúðkaup núna í september svo það er taka 2 þá :)

En mig langaði að láta þær ykkar sem eruð tískublaðaunnendur vita af því að það er komið nýtt Costume í verslanir. Þetta er ekki bara venjulegt blað í þetta skiptið heldur er þetta bók – með harðspjaldakápu!

Ég var ekki lengi að kippa með mér tveimur bókum – eina fyrir mig og aðra fyrir eina bestu sem er stödd erlendis. Ég fékk þau á föstudaginn en bækurnar eru víst að seljast mjög hratt upp var mér sagt. Svo ef ykkur langar í eintak þá hvet ég ykkur til að fara og kaupa það sem fyrst!

Eigið góðan sunnudag <3

EH

AndreA - baksviðs

Skrifa Innlegg