fbpx

AndreA – baksviðs

FashionÍslensk HönnunLífið MittMyndirShop

Mér finnst svo gaman að upplifa svona wow móment í myndatökum sem ég tek þátt í eða er að fylgjast með – þegar allt smellur saman og útkoman gefur manni gæsahúð. Ég fæ alltaf svoleiðis tilfinningu þegar ég fæ að fylgjast með ljósmyndaranum Aldísi Páls að störfum. Henni tekst alltaf að framkalla svo fallegar myndir og skapa gott andrúmsloft í kringum sig.

Í síðusu viku fylgdist ég með Aldísi vinna með hönnuðinum Andreu, sem rekur verslunina AndreA Boutique í Hafnafirðinum – sjá meira HÉR. Tilgangur myndatökunnar var að gera lookbook fyrir nýjar vörur. Aldís og Andrea skapa saman ofurteymi, þær vinna ótrúlega vel saman og ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel í myndatöku.

Í lok myndatökunnar eftir að það var búið að taka mynd af öllu fékk Andrea að njóta sín í botn og bjó til kjól úr Stellu klútunum sínum sem eru ótrúlega vinsælir. Úr urðu nokkrar af flottustu myndum sem ég hef séð. Allt var fullkomið, falleg föt, ótrúlega flott förðun og gullfalleg fyrirsæta. Takið sérstaklega eftir förðuninni sem er svo flott – mágkona Andreu sá um förðunina og hún er tiltölulega nýútskrifuð úr Snyrtiakademíunni. Hún er rosalega hæfileikarík :)

Mig langar að deila með ykkur nokkrum baksviðs myndum og hvetja ykkur sem eruð aðdáendur hönnunarinnar hennar Andreu að drífa ykkur í Hafnafjörð í dag – því það eru komnar nýjar vörur!!!

Fyrir ykkur sem eruð forvitnar að sjá hvað fer fram í svona myndatökum þá gefa myndirnar ykkur smá sýn inní tískubransann ;)SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC Screen Shot 2013-08-15 at 10.41.19 PM SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC Screen Shot 2013-08-15 at 10.42.09 PM SONY DSC Screen Shot 2013-08-15 at 10.41.54 PM SONY DSC Screen Shot 2013-08-15 at 10.41.32 PM SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC SONY DSC

Ljósmyndari: Aldís Páls
Stílisti og hönnuður: Andrea Magnúsdóttir
Förðun: Rose Magnusson
Fyrirsæta: Ágústa

Fullkominn eftirmiðdagur – takk aftur Andrea, Aldís og co fyrir að leyfa mér að fylgjast með:)

Fylgist svo að sjálfsögðu með AndreA Boutique á Facebook fyrir fleiri myndir bæði baksviðs og af vörunum.

EH

MAC - Tropical Taboo

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Svart á Hvítu

    16. August 2013

    Æðislegar myndir, allt svo fallegt frá henni.. er einmitt í kjól eftir hana í dag:)

  2. Elísabet Gunnars

    16. August 2013

    WOW en skemmtilegt. Hópur flottra kvenna og falleg klæði. Love. xx

  3. Andrea

    16. August 2013

    VÓ hvað mér finnst gaman að sjá þetta – þó ég hafi verið viðstödd… Ótrúlega gaman að þú komst með… ég sé þetta öðruvísi svona eftirá … gaman í vinnunni og þvílík forréttindi að vinna með svona hæfileikaríku fólki.
    TAKK erna fyrir að koma með – ótrúlega gaman að eiga þessar myndir líka :)
    ps…elska líka Trendnet….

  4. Rose

    16. August 2013

    I was FUN to have you around especially the little one ;) LOVE Trendnet and keep it up to inspire people!