fbpx

Uppáhalds skórnir mínir í Bianco!

Ég Mæli MeðLífið MittNýtt í FataskápnumSS14StíllTREND

Ég fékk ótrúlega skemmtilega beiðni frá henni Elísabetu sem á skóverslunina Bianco í Kringlunni. Bianco er sú búð sem ég kaupi mér langoftast skó í og mér finnst alltaf eitthvað flott þar.

bianco17

Beiðnin fólst í því að koma í búðina og velja mína uppáhalds skó sem yrði síðan stillt upp með smá skilti með mynd af mér í versluninni. Mér fannst þetta ekki leiðileg beiðni og sló því strax til. Bianco gerir þetta mikið í öðrum löndum og gaman að gera svona á Íslandi með íslenskum bloggara. Mér finnst þetta alla vega koma ótrúlega vel út. Einfalt og skemmtilegt og þið sjáið alveg hvað smekkurinn minn á skóbúnaði skín í gegn!

bianco10

Fallega uppstillt borðið finnst ykkur ekki? Ég lét það í hendur Elísabetar sem er auðvitað miklu betri í því en ég :)

bianco13

Mig langar svo aðeins að sýna ykkur skónna sem ég valdi á borðið og fara aðeins yfir það afhverju ég valdi þessa skó. Ég mátaði alla skónna sem eru á borðinu af því mér fannst mjög mikilvægt að velja líka skó sem væru þægilegir og sem ég sjálf myndi nota og vilja eiga.

bianco8

Þessir eru auðvitað bara trylltir og að verða uppseldir en það eru bara þessi þrjú pör eftir!!! Stærðin mín var t.d. búin en ég vona að þeir komi aftur og þá verð ég snögg til að kaupa þá ;)

bianco9

Hér eru svo sömu skór og ég á lága en bara háir og með sylgju. Táin gerir ótrúlega mikið fyrir skónna og liturinn er ekki það áberandi svo þeir passa við allt.

bianco3

Þessir finnst mér trylltir, þeir voru alveg efst á óskalistanum og voru annað parið sem fór á borðið. Sjúkir og passa við allt! Ég elska þessa lágbotna tísku og ég vona að hún haldi áfram. Ég er búin að ofnota hina flatbotna Bianco skónna mína sem fá núna kannski smá pásu þar sem ég á núna þessa – jeijj!

bianco2

Elska svona snið á skóm mér finnst eitthvað voða heillandi við svona breiðan borða yfir ristinni. Hællinn er frekar lár og breiður svo þeir eru ótrúlega þægilegir að fara í.

bianco5

Þessir fínu pinnahælar sem ég fékk um daginn og sýndi HÉR urðu að sjálfsögðu að vera með – svo elegant og fallegir!

bianco

Eftir að ég mátaði þessa þá langaði mig ekki úr þeim – mýkri og þægilegri skó hef ég bara ekki mátað áður. Þessir eru líka til svartir en mér fannst hvíti liturinn svo fínn og sumarlegur og því valdi ég hann frekar á borðið:)

bianco14

Þessir hælaskór finnst mér alveg sjúkir! Maður verður alltaf að eiga eina svona elegant svarta sem ganga við allt. Það sem mér finnst þó skemmtilegast við þessa er neonguli botninn sem glittir í þegar maður labbar. Aftast á myndinni sjáið þið einmitt aftan á skónna.

bianco15

Ég er voða hrifin af svona týpu af skóm. Þessir eru auðvitað svipaðir og þeir fyrir ofan nema bara með fylltum korkhæl sem mér finnst alltaf voða sumarlegt. Ég á einmitt eina heima voða svipaða sem eru alltaf teknir fram á sumrin.

bianco11

Trendnet myndin eftir Aldísi Páls sómar sér vel á plakatinu sem elskulegi unnustinn minn setti upp fyrir okkur – gott að eiga einn svona snilling heima!

bianco6

En uppáhalds – uppáhalds skórnir eru klárlega þessur sem þið sjáið hér fyrir neðan!! Eins og aðrir bloggarar á Trendnet þá er ég mega hrifin af þessari týpu af sandölum og var því ekki lítið spennt þegar ég heyrði að þeir væru að koma í Bianco á frábæru verði – aðeins 12990kr.

Þessir verða notaðir grimmt í sumar og ef ykkur líst vel á þá hafið þá hraðar hendur því það komu bara nokkur pör en vonandi koma þeir þó aftur :)

bianco12

Hér sjáið þið norska bloggarann Hanne T í sínum – mega flottir. Ég er búin að lakka á mér tásurnar og allt til að vera fín í þessum!

392552-10-1401110286177

Hvet ykkur til að kíkja á uppáhalds skónna mína í Bianco – það var líka að koma ný sending í vikunni og fullt af fallegum skóm til :)

EH

Hreinsivörur frá Neutrogena

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Svart á Hvítu

    30. May 2014

    Mjög skemmtileg hugmynd hjá Elísabetu, hef einmitt tekið eftir þessu með erlenda bloggara:) Svo er hún Elísabet bara svo dasamleg sjálf!
    Kv.fyrrverandi Bianco starfsmaður;)

  2. Sirra

    30. May 2014

    Vá þetta hefur verið skemmtilegt :)

    Ég er sjúk í svörtu pinnahæla skóna (eins og þú átt) og líka hina með gula botninum!

  3. Jovana Lilja

    30. May 2014

    Veistu hvað lágu stígvélin kosta sem eru giltir á tánni? :)

  4. Dísa

    30. May 2014

    Sá einmitt svörtu hælana með gula botninum, ekkert smá flottir :) (þykir gulur líka fallegri en rauður líkt og undir Louboutin skóm)
    Vel valið hjá þér, skemmtileg færsla :)
    Ps, en plís viltu sleppa N-inu í þægilegt, svo oft skrifað – les alltaf bloggið þitt skemmtilega, en þetta stingur svo í augun ;)

    • Ohh já! Veistu ég bara skil ekki afhverju hausinn á mér er ekki að ná þessu… Lofa að taka mig á!! Takk fyrir ábendinguna;)

  5. Jónína Sigrún

    31. May 2014

    En skemmtilegt, gaman að sjá hvað Ísland er farið að taka bloggara meira inní eins og erlendis :)

    Mér finnst pinnahælarnir geðveikir!

  6. Eva Björk

    1. June 2014

    Þessir skór með sylgjunni á tánni, eru þeir úr leðri?

    • Ég er ekki alveg með það á hreinu en ég á lægri týpuna og mig minnir endilega að þeir séu að innan úr leðri – hafðu endilega samband við Bianco á Facebook þau svara þér um hæl ;)