fbpx

#trendneglur

Maybellineneglur

Mér er það sönn ánægja að fá að tilkynna ykkur það að í dag hefst nýr Instagram leikur hér á trendnet. Síðasti förðunartengdi leikurinn var alveg ótrúlega vinsæll – #trendvarir – og nú biðjum við ykkur um að merkja #trendneglur við ykkar naglalakkamóment. Leyfið ímyndunaraflinu að taka stjórnina og fangið skemmtileg augnablik :)

Leikinn gerum við í samstarfi við Maybelline – en það komu ný naglalökk frá merkinu í sölu hér á landi í vor sem þið hafið vonandi tekið eftir. Lökkin heita Color Show og eru til í ótrúlega mörgum, flottum litum. Lökkin koma í frekar litlum umbúðum og burstinn er þannig í laginu að það er auðvelt að bera lakkið á með einni stroku en hann er mjög meðfærilegur svo það er hægt að nota hann til að gera munstur á neglurnar.

Næstu fjóra daga munum við svo velja uppáhalds myndirnar okkar og gefa eigendum þeirra vegleg verðlaun. Við veljum 5 myndir eftir hvern dag – fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. Í verðlaun verða – Color Show naglalakk, Color Show Polkadots yfirlakk, Express Remover naglahreinsirinn – sjáið hann HÉR – og Rocket maskarinn – sjáið hann HÉR. Það sem þið þurfið að gera til að eiga kost á verðlaununum er að merkja ykkar naglalakkamóment á Instagram með #trendneglur og @maybellinereykjavik – sem er síða Maybelline hér á Íslandi á Instagram.

Eftir að við höfum gefið þessa 20 glaðninga þá munum við öll velja eina mynd sem okkur finnst standa uppúr og fær eigandi hennar 50.000 kr vöruúttekt frá Maybelline. Allar myndirnar sem taka þátt munu eiga kost á því að vinna aðalverðlaunin. Sigurmyndin verður kynnt hér á trendnet á þriðjudaginn.

Það er ýmislegt sem má gera til að taka þátt í leiknum – hér eru nokkrar hugmyndir frá mér:Screen Shot 2013-09-10 at 10.08.03 PM Screen Shot 2013-09-10 at 10.32.04 PM Screen Shot 2013-09-10 at 10.09.52 PM Screen Shot 2013-09-10 at 10.11.14 PM

Ég ætla að fá að vera fyrst og velja mínar 5 uppáhalds myndir eftir daginn í dag – sjáumst á Instagram!

Að lokum langar mig svo að minna ykkur á að merkja líka ykkar trendmóment með #trendnet – það borgar sig;)

EH

Þerrum tárin

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Lára

    12. September 2013

    Ég elska litaúrvalið á naglalökkunum en gæðið er ekki frábært. Þau lita mjög eftir sig (aðallega græna) og helst því miiiður alls ekki lengi á – allavega ekki eitt og sér. Þó liturinn sé mjög þykkur og fallegur.

  2. Aldís

    12. September 2013

    Ég vil helst ekki pæla í því, hvað ég hef keypt mörg, reyndar ódýr, naglalökk – sem lúkka æðis í búðinni, en eru svo bara þunn og litlaus.. þegar ég ætla að gera mig fína heima *** og eru aldrei notuð aftur !!