fbpx

Taktu 10. apríl frá!

Lífið MittShopVero Moda

Það er vægast sagt sjúklega gaman að vinna hjá flottu fyrirtæki eins og Bestseller sem rekur m.a. Vero Moda hér á Íslandi þar sem ég vinn sem merchandiser. Í dag var haldin æðislegur hádegisverður með helstu miðlum og bloggurum landsins og dagskrá 10. apríl kynnt.

Screen Shot 2015-04-07 at 5.39.39 PM

Ég hef sjaldan verið jafn spennt fyrir því að mæta í vinnuna eins og ég er spennt fyrir því að mæta á föstudaginn og taka þátt í þessu fjöri en ég ætla að reyna að vera stödd inní Vero Moda í Smáralind helst allan daginn eða eftir því sem barn og grind leyfir.

Ég ætla að segja ykkur meira frá Give-A-Day í vikunni og hvað málið snýst í raun og veru um þó orðin gefi það sterklega til kynna. Eitt sem ég get þó sagt ykkur er að ég veit ekki til þess að eitthvað svona hafi nokkur tíman verið gert áður og ég er mjög stolt að fá að vera partur af þessu flotta fyrirtæki!

EH

Vorlitirnir frá YSL

Skrifa Innlegg