fbpx

Sunnudagsmogginn

Ég Mæli MeðLífið MittMakeup Artist

Helgi okkar fjölskyldunnar er búin að vera æðisleg! Við erum búin að njóta okkar í botn á Akureyri. Ég er búin að vera að vinna núna í 2 daga inní snyrtivörudeild Hagkaupa og þeir feðgarnir eru búnir að eiga góðar stundi saman á meðan. Þess á milli erum við búin að ná að gera helling, fara í Brynjuís, borða á 2 æðislegum veitingastöðum, heimsækja Hof, heimsækja nýja antíkverslun og ég er búin að uppgötva nýja og æðislega hönnun en meira um það allt seinna:)

Eitt af því sem fær að fylgja mér heim er Sunnudagsmogginn en hann keypti ég í gær – ótrúlega spennt að sjá viðtalið við mig – ég mæli hiklaust með því svona þó ég segji sjálf frá.

Þar tala ég meðal annars um þessa frábæru bloggara sem skrifa líka á Trendnet – mínar stílfyrirmyndir sem er ein góð vinkona og önnur uppáhalds stóra frænka. Svo fáið þið smá sneak peak inná skrifstofu snyrtivörufíkilsins!

Screen Shot 2013-10-13 at 11.15.38 AM

Eftir hádegi höldum við svo heim á leið og förum beint í leikhús að sjá Óvitana þar sem litli frændi Aðalsteins fer með smá hlutverk. Þetta stefnir í ótrúlega góðan dag!

EH

Reykjavík Makeup Journal Teaser

Skrifa Innlegg