fbpx

Reykjavík Makeup Journal Teaser

Ég Mæli MeðLífið MittReykjavík Makeup Journal

Jújú það fer að styttast í þetta!!

Mig langaði að koma með smá teaser af efninu sem er í blaðinu – en blaðið verður aðgengilegt eftir helgi HÉR. Í blaðinu finnið þið meðal annars viðtal við hana Hugrúnu Halldórsdóttur í Íslandi í dag þar sem hún segir lesendum frá snyrtivörunum sem eru í snyrtibuddunni hennar. Gullfalleg kona sem lumar á skemmtilegum fegurðarráðum.

Screen Shot 2013-10-09 at 11.56.49 PM

Einnig verður förðunartrendum vetrarins gerð góð skil, ég segi frá mínum uppáhalds förðunarburstum og fer yfir hluti sem geta nýst húðinni ykkar vel í vetrarkuldanum.

Svo kynni ég fastan lið sem nefnist Bjútíklúbburinn sem ég get varla beðið eftir að segja ykkur betur frá.

Ég er orðin virkilega spennt – sérstaklega að heyra hvað ykkur finnst. Þetta er svo sannarlega búin að vera mikil vinna og ég er búin að leggja ótrúlega mikið í fyrsta tölublaðið og fórna miklum tíma í það.

Það er fínt að taka smá pásu frá InDesign og skrifa hér inn – en ég er að læra að setja blaðið sjálf upp – sem er mjög gott því þá get ég haft blaðið nákvæmlega eins og ég sé fyrir mér!

EH

Makeup Trend vetrarins #3

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Snædís Ósk

    12. October 2013

    Þú ert svo dugleg! Get ekki beðið eftir því að sjá blaðið :**

  2. Fatou

    14. October 2013

    Hlakka til að lesa :) Gangi þér vel!