fbpx

Síðustu vinningshafar #trendvarir taka tvö!

MaybellineTrendVarir

Ég varð að fá að hafa síðasta orðið í Instagram leiknum okkar og Trendnet – annað var ekki hægt;) Ég er búin að vera með hnút í maganum síðan að leikurinn hófst á fimmtudaginn yfir að þurfa að gera uppá milli allra fallegu myndanna og að þurfa einhvern vegin að velja bara eina úr. Svo ég valdi þrjár, ég hafði samband við Maybelline hér á Íslandi til að athuga hvort ég gæti fengið að gefa aukaverðlaun og það var að sjálfsögðu ekkert mál.

Að þessu sinni verður því ein mynd sem fær aðalverðlaunin sem er vöruúttekt frá Maybelline fyrir 30.000kr og 2 myndir í viðbót sem fá Vivids varalit, maskara og naglalakk.

Þessar tvær myndir fá aukaverðlaun:@eydisevensen – gullfalleg stelpa með gull fallegt bros@klarasol – æðisleg mynd og halló alltaf að vera með varalit þegar þið skellið ykkur á kaffihús með vinkonunum héðan í frá;)

og sigurvegarinn er…..@ingunnembla bræddi mig með þessari flottu mynd – mig langaði að velja mynd sem sýndi hina eiginlegu Maybelline stelpu. Falleg og töff stelpa með flott sjálfstraust og að sjálfsögðu með smart varalit. Mér fannst ég sjá það í ótrúlega mörgum myndum en að þessu sinni varð það Ingunn sem mér fannst standa uppúr.

Klara og Eydís þið megið senda póst á trendnet@trendnet.is með fullu nafni og heimilisfangi svo hægt sé að senda ykkur vinningana. Ingunn þú mátt senda mér línu á ernahrund@trendnet.is svo við getum mælt okkur mót í einu af útibúi Maybelline því ég ætla að fá að vera þér innanhandar í vali á snyrtivörunum:)

Mig langar að enda þetta á því að þakka ykkur kærlega fyrir þáttökuna síðast þegar ég athugaði þá var búið að merkja 732 myndir með #trendvarir og fjölmargir fylgjendur hafa bæst í hópinn hjá @maybellinereykjavik. Ég vænti þess nú að við Trendnetverjar ásamt ykkur séum búin að þjófstarta þess flotta sumartrendi og ég muni héðan í frá bara mæta vel varalituðum skvísum á röltinu niðrí bæ.

Varalitur er flottur fylgihlutur og must have fyrir sumarið!

EH

Veislumæðgin

Skrifa Innlegg