fbpx

Nýtt – Pink&Red frá Bobbi Brown

Bobbi BrownÉg Mæli MeðFallegtmakeupVarir

Stundum er ég rosalega mikil stelpa og þegar ég verð spennt yfir einhverju þá heyrist stelpulegt ískur í mér – það heyrðist þegar ég sá þessa mynd:Bleikt og rautt það gerist varla stelpulegra. Nýjasta línan frá Bobbi Brown er mætt í verslanir og hún einkennist af snyrtivörum í fallegum bleikum og rauðum litum. Í línunni eru varalitir – úr Creamy Matte línunni – kinnalitastifti, glossar og naglalökk.

“With this collection, I took an unconventional approach to the season’s traditional color palette. The Pink & Red Collection isn’t about matching your lips, cheeks and nails. It’s about deliberately mismatching. I love pink and red worn together- it’s a very modern mix (and perfect for Valentine’s Day).” -Bobbi Brown

Ég hef ekki svo ég muni gerst svo djörf að blanda þessum litum mikið saman en þessi lína hvetur mig til að gera meira af því.

Hér er ég með bleika varalitinn og rauða kinnalitastiftið. Hvernig líst ykkur á?

Fyrir áhugasamar þá eru vörurnar væntanlegar í verslanir í dag og í takmörkuðu upplagi;)

EH

Strympa á NY Fashion Week

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Berglind G.

    6. February 2013

    Geggjaður varalitur, sé kinnalitin ekki almenninlega. En já það er klárlega möst að kíkja í MAC

    • Reykjavík Fashion Journal

      6. February 2013

      Nei flassið var of sterkt hjá mér – setti samt alveg nóg ég næ vonandi að setja inn betri mynd bráðum. En hann kemur voða fallega út á kinnunum, svona léttur roði eins og maður sé nýkomin inn úr góðum göngutúr! og þú finnur þessar vörur frekar hjá Bobbi Brown en mac;)

  2. Iris

    6. February 2013

    Fallegt