fbpx

Strympa á NY Fashion Week

Fræga Fólkið

Í gær bættist við ný sýning við tískudagatalið mitt. Þann 13. febrúar fer fram sýning þar sem nýjasta Strympu-tískan verður sýnd!

Sýningin er haldin í tilefni útkomu myndarinnar Smurfs 2. Sony Pictures fóru í lið með Junk Food Art House fyrir sýninguna og það verður gaman að sjá hvort línan innihaldi hvíta kjóla eins og við erum vön að sjá Strympu í eða hvort innblásturinn séu litir persónunnar, blár, gulur og hvítur. Ég vona alla vega að fyrirsæturnar verði ekki málaðar bláar….

Línan verður sett í sölu og seld í stórum verslunum eins og Selfridges, Bloomingddale’s og Sacks Fifth Avenue. Fötin verða á meðan sýningu myndarinnar stendur sem er í sumar.

Þetta verður forvitnilegt vægast sagt!

EH

Búðu til þín eigin gerviaugnhár

Skrifa Innlegg