fbpx

Nýtt í Snyrtibuddunni

Ég Mæli MeðMACmakeupMakeup ArtistNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniVarir

Ég veit ekki með ykkur en ég var ótrúlega ánægð þegar á frétti að Fashion Sets línan frá MAC væri á leiðinni til landsins!! Línan inniheldur varaliti, glossa, augnskugga og naglalökk í einungis 4 litum – s.s. koma 1 naglalakk, 1 varalitur, 1 gloss og 1 augnskuggi í sama litnum svo maður getur eignast sett af uppáhalds litnum sínum eða mixað saman. Ég á einn varalit – fjólubláan að sjálfsögðu – og gloss úr línunni. Mér finnst þetta ofboðslega fallegir litir og sterk litapigment er það sem einkennir vörurnar sjáið bara –

Glossinn heitir Ablaze og litnum myndi ég lýsa sem sterkum orange lit.Varaliturinn heitir Heroine – elska allt fjólublátt eins og þið vitið!

Truflaðir litir finnst ykkur ekki;) Var með varalitinn í surprise afmælispartýi í gær, setti reyndar nude varablýant undir hann svo ég þurfti ekkert að pæla í að þurfa að laga hann til um kvöldið. Svo langar mig alveg ótrúlega mikið í aungskugga úr línunni finnst eiginlega möst að eiga 1 af hverri tegund úr línunni – finnst orange naglalakkið truflað en fæ smá valkvíða yfir augnskuggunum þarf að skoða þá betur – mér líst samt vel á þann bláa sem þið sjáið á myndinni fyrir ofan. HÉR getið þið skoðað vörurnar sem eru fáanlegar núna í MAC;) Í svona línum koma alls ekki mörg stykki af hverri vöru svo það er um að gera að skella sér í snyrtivöruverslunarleiðangur í dag!

Eigiði góða helgi:)

EH

Leyndarmál Makeup Artistans

Skrifa Innlegg

11 Skilaboð

  1. Jóhanna María

    1. June 2013

    Sorrí en mér finnst þetta ekki fara þér vel :/

    • Óþarfi að biðjast afsökunar á því, það eiga allir rétt á sinni skoðun:) Mér finnst þetta mega flott – er það ekki það sem skiptir máli;)

  2. Elísabet Gunn

    1. June 2013

    Mig langar í þennan efri – ótrúlega natural og fallegur :)

  3. Gerður

    2. June 2013

    You rock it !! Það er svo gaman að breyta til og Heroine er í sérstaklega fallegur varalitur!

  4. Hildur

    2. June 2013

    Mér finnst Heroine æði, keypti sjálf Ablaze og Silly varalitina, elska þá báða. Ætlaði að kaupa Heroine líka en þær sögðu mér að hann hefði ekki komið…kannski kom eitt stykki sem þú náðir, heppin ;)

  5. Gunnhildur Birna

    2. June 2013

    fallega fallega Erna :*

  6. Berglind

    11. December 2013

    Ég var að pæla hvort þú vissir eitt með Heroine. Er MAC hætt að selja hann eða er hann kannski bara sold out? Ég finn hann ekki einu sinni á mac heimasíðunni…

    • Reykjavík Fashion Journal

      11. December 2013

      Heroine kom bara í takmörkuðu upplagi – hann var partur af one shot línu sem kom út í sumar. Það komu örfáir til landsins og liturinn seldist upp strax :( Ég hvet þig til að kíkja í MAC búðirnar og athuga hvort stelpurnar geti mælt með eh öðrum svipuðum lit fyrir þig :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      18. January 2014

      Já… Úti ekki enn hér – en þetta minnir mig á að ég ætlaði einmitt að tékka á því hvort hann væri ekki örugglega á leiðinni samt:):)