Flestir miðlar virðast vera á sama máli þegar kemur að því að velja þá stjörnu sem stóð uppúr varðandi útlit á Golden Globe verðlaunahátíðinni. Ástralska leikkonan Margot Robbie sló fyrst í gegn í sápuóperunni Nágrannar er sýnd á Stöð 2. Svo ákvað hún að fara að ná frama í Bandaríkjunum og lék í þáttaröðinni Pan Am sem var svo seinna tekin úr sýningu – eitthvað sem ég skil ekki! En nú hefur hún alveg slegið í gegn sem móttleikkona Leonardo DiCaprios í myndinni Wolf of Wall Street – ég verð að fara að komast í bíó að sjá hana.
Stjörnurnar fara ekki bara í förðun og hárgreiðslu þær fara margar hverjar líka og láta fríkka uppá húðina sína. Það gerði Margot sem fékk makeup artistann Jennifer Streicher til að taka húðina sína í gegn – Jennifer sá líka um förðunina og hárið hennar. Ég fann smá lýsingu á því hvernig hún náði þessum fallega lit á húðinni hennar Margot með vörum frá St. Tropez.
Daginn fyrir verðlaunaafhendinguna bar hún eina umferða af St. Tropez Bronzing Mousse. Froðan er vinsælasta varan frá merkinu og það er ótrúlega auðvelt að bera hana á, hún hefur aldrei klikkað hjá mér. Með því að nota forðuna var kominn náttúrulegur og fallegur sólarkysstur grunnur. Fyrir verðlaunaafhendinguna þá blandaði Jennifer saman Instant Tan Wash Off Face & Body Lotion saman við Skin Illuminator í gyllta litnum og bar á húðina hennar. Nokkrum mínútum seinna þegar kremið hafði aðeins þornað fór hún aðra umferð yfir þau svæði húðarinnar sem hún vildi highlighta með Skin Illuminatornum einum og sér. Hún setti hann ofan á axlirnar, bringuna og á viðbeinið. Þar sem Margot var í hvítum kjól var verkið mjög vandasamt og á meðan hún bar vörurnar á húðina var búið að setja tissjú í kringum kjólinn svo ekkert myndi fara í hann. Þegar vörurnar eru svo búnar að fá að þorna á húðinni í nokkrar mínútur þá smitast þær ekki í föt. Instant Tan Wash Off Face & Body Lotion er með nýrri tækni sem kallast raincoat sem verndar kremið, það lekur ekki þó svo þið svitnið eða lendið í rigningu. En samt fer það bara af í sturtu – ég skil þetta ekki en það virkar. Ég hef áður fjallað um þessa vöru HÉR.
Hér sjáið þið myndir af vörunum sem fást t.d. í Hagkaupum Kringlunni og Smáralind ;)
Ég hlakka til að fylgjast með þessari gullfallegu áströlsku skvísu í framtíðinni – sérstaklega á rauða dreglinum :)
EH
Skrifa Innlegg