fbpx

Naglalökk fyrir viðkvæma húð!

CliniquemakeupMakeup ArtistneglurNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minni

Clinique var að senda frá sér nýja naglalakkalínu sem samanstendur af lökkum sem eru sérstaklega gerð með konur með viðkvæma húð og augu í huga. Naglalökkin eru frábrugðin öðrum á þann hátt að formúla þeirra inniheldur ekki efni sem eru þekkt fyrir að erta húð. Lökki voru sérstaklega prófuð á fólki með viðkvæma húð og augu.

Núna finnst mér svo ótrúlega mikið magn af merkjum sem bjóða uppá naglalökk og flest merki bjóða uppá svipaða liti. Ég hef þess vegna farið að venja mig á að fá mér frekar lökk sem ég veit að eru fljót að þorna – var reyndar að heyra um fast dry top coat sem ég verð að prófa – ég neinni bara ekki að bíða of lengi sérstaklega þegar þarf að setja fleiri en eina umferð. Formúla þessara nýju lakka innihelduru gott jafnvægi á milli resins og filmformers sem gerir það að verkum að þau eru fljót að þorna.

Hér sjáið þið hvernig litirnir koma út á nöglunum – ég setti bara eina umferð af litnum. Liturinn þekur neglurnar ótrúlega vel.

Ótrúlega sumarlegir og flottir litir – mér finnst þetta ótrúlega skemmtileg nýjung. Sjálf er ég með ótrúlega þurr og viðkvæm augu sem hafa bara versnað vegna ofnotkunar á linsum svo ég finn alveg stundum fyrir pirring í augunum þegar ég naglalakka mig. Með þessum lökkum þarf ég ekkert að pæla í því – væri alveg til í að bæta við fleirum litum af þessum í safnið sem fyrst!

EH

Kaup Dagsins

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Aldís

    9. June 2013

    Ég er að leita að fallegu brúðarnaglalakki, vil alls ekki hafa það of áberandi en samt ekki heldur alveg glært, mér sýnist naglalakkið á miðjumyndinni vera frekar fallegt, en eru einhver spes naglalökk sem þú myndir mæla með fyrir stóra daginn ?

    • Já veistu ég er ótrúlega skotin í þessu ljósa lakki – en ég er sammála þér með litinn ég myndi vilja vera með svona lit. En ég mæli bara með því að þó fáir þér gott top coat eða base coat naglalakk svo lakkið haldist fullkomin allan daginn. Það var að koma út ný Top Coat lína frá L’Oreal ég mæli hiklaust með henni:) Ætla einmitt að gera góða færslu um hana á næstu dögum:)

  2. Linda Rún

    10. June 2013

    Ef þú ert að leita af naglalökkum sem þorna fljótt þá ættiru að prófa Seche Vite top coat! Þú setur það yfir blautt naglalakk og það er þornað liggur við strax og það kemur ótrúlega flottur gljái. Það er reyndar ekki til á Íslandi, en ég panta það alltaf að utan. Það er virkilega þess virðis!

    • úúú hljómar vel – ætla fyrst að prófa þetta sem er til heima ef það virkar ekki þá prófa ég þitt;D