fbpx

London dress #2

Annað DressFashionÍslensk HönnunLífið MittTrend

Dagur 2 í London var dásamlegur í alla staði! Þetta var dagurinn sem ég hitti þrjár ótrúlega flottar konur og tvær þeirra hafa verið fyrirmyndir mínar í bjútíheiminum í nokkur ár núna – ef þið fylgist með mér á Instagram @ernahrund ættuð þið að fatta hvaða konur það eru – já ég er enn að jafna mig á spennufallinu.

Annað af dressum dagsins einkennist af fallegri flík sem ég sá að bættist líka í fataskápinn hennar Svönu á Svart á Hvítu nýlega – ég kolféll fyrir honum sjálf og klæddist honum við annars einfalt dress en hann poppaði svo sannarlega uppá það.

londondressannað4

Pallíettukimono: AndreA Boutique

Buxur: Uppháar og dásamlegar frá Lee – þegar Andrea sagði mér að ég yrði að kaupa mér svona buxur þá hlýddi ég að sjálfsögðu og keypti mér einar svona buxur – sé ekki eftir því! Fást að sjálfsögðu í búðinni hennar :)

Hlýrabolur: VILA

Skór: Camilla Pihl fyrir Bianco, þessir eru væntanlegir aftur ;)

londondressannað2

Það er ekki amalegt að vera í London með einni dásamlegri vinkonu sem maður getur platað til að taka dressmyndir – takk Íris***

londondressannað

Ég er alveg að dýrka þennan kimono – fallegur finnst ykkur ekki?

Fylgist svo með því seinna í dag tilkynni ég á blogginu hvaða heppni lesandi fær kimono frá Andreu í 5 ára afmælisglaðning!

Knús frá London í síðasta sinn í bili :***

EH

Minimal Decor opnar - lesendur fá 15% afslátt

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Hildur Sif

    24. October 2014

    Ógeðslega flott dress! Þú ert með svo flottan stíl :)

  2. Rósa

    24. October 2014

    Sjúklega flottur :)

  3. Sæunn

    24. October 2014

    Ó þessi er alveg dásamlegur! Andrea stígur ekki feilspor frekar en fyrri daginn. Fíla andstæðurnar i outfittinu, þessi virkar pottþétt bæði svona og yfir einhverjar glamúr flíkur.