fbpx

Kvíði á meðgöngu…

Lífið MittMeðganga

Nú er ég að upplifa meðgöngu númer tvö, meðgangan hefur sannarlega ekki verið viðuburðarlaus en ég hef eftir bestu getu reynt að halda ró minni og fyrst og fremst að reyna að njóta hennar í alla staði. Það blossa þó upp þessar algjörlega óraunhæfu áhyggjur af og til… svona örlítill kvíði sem bólar innst inní manni þó maður reyni eftir fremsta megni að beita huganum á móti þeim. Það hefur alltaf reynst mér vel að koma áhyggjum mínum og þessum fáránlegu hugsunum mínum frá mér hér á síðunni og oftar en ekki hafa mínar áhyggjur opnað augu annarra í sömu sporum.

Meðganga er sannarlega stórfurðulegt dæmi eins mikið og hún er stórkostleg og eins mikið kraftaverk og þetta er þá er þetta sérstaklega þreytandi ástand oft á tíðum. Ég hef oft grínast með það að ég sé tilbúin að fæða barn á hverjum degi en ég sé ekki alveg sömu skoðunar með það að ganga með barn. Meðganga setur mig alveg útaf laginu, ég er dauðþreytt allan daginn – ég hef smá áhyggjur að fólk haldi að mér leiðist öllum stundum og að fjölskyldan mín haldi að ég sé gjörsamlega komin með ógeð af þeim, sannleikurinn er sá að ég er bara yfirleitt sofandi í hausnum á mér. Ég gleymi öllu, ég er ekki að grínast ég gleymi öllu! Það þýðir ekki að spurja mig hvaða dagur er eða hvað ég fékk mér að borða í morgunmat þó það hafi mögulega verið 30 mínútum áður. Ef ég hef mælt mér mót við einhvern verð ég að skrifa það niður – annars mæti ég bara ekki. Ég er með skrifað niður hvað ég er komin langt í hverri viku annars gæti ég ekki svarað þeirri spurningu. Ég þakka bara fyrir að muna að klæða mig í föt á morgnanna ég er bara algjör gufa þessa dagana.

Svo er það þessi kvíði, eins mikill töffari og ég gef mig út fyrir að vera þá er ég kvíðin fyrir hinum ýmsu hlutum. Ég er kvíðin fyrir hinum mest stórfurðulegu hlutum en allt öðrum hlutum heldur en ég var kvíðin fyrir á síðustu meðgöngu. Ég hef upplifað svo margt síðan ég gekk með mitt fyrsta barn og þó einmitt ég reyni að vera ansi töff þá er ég stundum að fara á taugum. En ég geri mér þó líka grein fyrir því að þetta eru algjörlega fáránlegar áhyggjur sem skipta engu máli þegar upp er staðið en sumar eru þó kannski aðeins meira raunhæfar en aðrar vegna fyrri reynslu en ég hef líka ákveðið að segja þeim stríð á hendur með aðstoð frá góðum aðilum. Ef þið nennið að lesa þá komist þið að þeim hér aðeins neðar…

Að gefa barninu brjóst í fyrsta sinn…

Fyrsti óraunhæfi kvíðinn sem hrjáir mig á köflum. Það var enginn sem varaði mig við hvað það væri virkilega vont í fyrstu skiptin að gefa barni brjóst. Ég átti alla vega ekki von á þessu svo ef þið hafið ekki heyrt þetta verið þá undirbúnar – það er líka oft betra því maður er kannski búin að undirbúa sig undir eitthvað skelfilegt og svo reynist það ekki alveg svo slæmt. En sársaukinn hverfur eftir nokkra daga – hjá mér var annað brjóstið komið eftir viku og hitt eftir svona 10 daga þá fann ég ekkert fyrir þessu. Ég er í alvörunni smá stressuð fyrir þessu en ég bít á jaxlinn bara.

Að ég nái ekki að fá mænudeyfingu…

Ég sé ekki sólina fyrir mænudeyfingu, þetta er algjörlega dásamlegt verkjastillandi tól sem hjálpaði mér svakalega í síðustu fæðingu. Ég er smá stressuð með að ég geti ekki fengið mænudeyfingu núna… að það verði eitthvað sem kemur í veg fyrir það ef fæðingin verður t.d. töluvert styttri en síðast. Þetta er eflaust gjörsamlega tilgangslaus kvíði en ég þekki bara ekkert annað svo ég er smá stressuð.

Að gera nr. 2 í fyrsta sinn eftir fæðinguna…

Afsakið ég veit ég hef gert ýmislegt hér á síðunni minni og verið mjög opin með skrif en þetta orð get ég ekki skrifað svo ég ætla að nota nr. 2. En ég man að ég fékk bara hægðartregðu eftir síðustu fæðingu af því ég þorði ekki að rembast. Mér leið bara eins og ég væri að rifna. Nú rifnaði ég lítið sem ekkert í fæðingunni bara eitthvað örlítið en þetta var alveg skelfilegt og í alvörunni þá er þetta einn af þeim hlutum sem ég kvíði fyrir.

Að verða tóm…

Eins magnað og það er að fá barnið sitt í heiminn þá eru tilfinningarnar líka blendnar. Manni líður dálítið eins og barnið sé svo öruggt inní maganum og þegar það er þar þá veit maður allaf hvar það er og getur passað svo vel uppá það. Þegar það er komið í heiminn er sagan önnur og maður þarf að treysta heiminum og umhverfinu í kringum sig fyrir barninu það er ekki auðvelt eða það fannst mér alls ekki. Svo er annað að finna það að maður sé tómur þetta er ein sú skrítnasta tilfinning sem ég hef upplifað – ég var ekki ein í 9 mánuði svo loks þegar ég fékk smá „ró“ í líkamanum þá vildi ég helst fá eitthvað aftur inní magann minn.

Að ég missi ekki vantið…

Á síðustu meðgöngu hófst fæðingin mín eins og í amerísku bíómyndunum – ég missti vatnið. Ég man ég lá uppí rúmi og fann að ég var að blotna smá í klofinu. Ég hugsaði ohh – aftur að pissa á mig, jább það gerist og er mjöööög algengt og fullkomlega eðlilegt. Svo ég stóð upp og fór á klósettið, þá kom þessi svakalega skvetta af vatni bein í klósettið og þar með var fjörið hafið. Svo gerðist voðalega lítið fyrstu tímana en sólarhring seinna varð ég að fá drip til að örva samdrættina því það var bara ekkert að gerast þá fékk ég mænudeyfingu svo ég fann aldrei þessa samdrætti. Svo nú er ég dáldið stressuð með að ég missi kannski ekki vatnið og fari hinssegin af stað og þá eigi ég bara ekki eftir að vita að þetta er byrjað því ég reikna bara með því að vantið fari aftur og það byrji þannig aftur. En í raun eru sárafáar konur sem upplifa það að fæðingin byrji með vatnsmissinum – mér finnst ég mjög sérstök ;)

Að fara að sofa á kvöldin…

Nú er eitt erfiðasta tímabilið hafið hjá mér, nú sef ég ekki á nóttunni. Bæði á ég erfitt með að koma mér fyrir – ég er reyndar með snúningslak og meðgöngukodda sem hjálpa mér gríðarlega, svo pissa ég endalaust og nú eru sinadrættirnir mættir. Svona þrisvar á nóttunni vakna ég með svakalega verki í löppunum og sprett á fætur og teygi úr löppunum. Þetta eru verstu sinadrættir sem ég hef upplifað – alveg eins og á síðustu meðgöngu. Ég er með ofnæmi fyrir bönunum og ananas sem eru ráðlagðir til að draga úr sinadráttunum og magnesíum duftið virkar ekki. Svo ég bít á jaxlinn og vona að ég fái kannski pásu eina og eina nótt. En á hverju kvöldi þegar ég leggst á koddann kemur stressið fyrir sársaukanum… ég hugsa hvað ætli ég fái að sofa lengi þessa nótt. Síðustu nótt náði ég samfellt tveimur tímum…

kvíði

 22 vikur + 2 dagar…

Þetta er kvíðinn minn og áhyggjurnar mínar, kannski eru fleiri þarna úti sem deila þeim með mér, kannski eru aðrar áhyggjur sem hvíla á ykkur. Af minni reynslu vil ég segja ykkur að þær eru allar fullkomlega eðlilegar þetta er það stærsta sem við gerum á lífsleiðinni að verða foreldarar. Það er ótrúlega margt að gerast inní okkur og inní huganum okkar, nýjar tilfinningar sem við kunnum ekki á og vitum ekki hvað við eigum að gera við. En það er mikilvægt að tala upphátt og segja frá áhyggjunum og kvíðanum. Ég gerði það ekki á síðustu meðgöngu og áhyggjurnar og kvíðinn gerjuðust inní mér og urðu alltaf meiri og meiri þar til ég fékk hálfgert taugaáfall og var greind með fæðingarþunglyndi.

Á þessari vegferð eru allir til staðar fyrir okkur, maki, mamma, amma, systkini, vinkonur og vinir og auðvitað þessar yndislegu og einstöku ljósmæður sem bera okkar hag fyrir brjósti. Ég var með einstaka ljósmóður á síðustu meðgöngu sem mér þykir óendanlega vænt um – hún kom mér til bjargar þegar ég þurfti á björgun að halda. Núna er ég með aðra og mér líst líka svakalega vel á hana og ég finn að á milli okkar ríkir mikið traust og ég veit hún mun passa vel uppá mig og krílið.

Gangi ykkur sem allra best á ykkar ferð***

EH

Nýtt frá Bobbi: Hot Collection

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

9 Skilaboð

  1. Íris

    15. April 2015

    Ég get hughreyst þig með því að “eftir fæðingu” vesenið sem þú talar um er ekki næstum því eins slæmt með barn númer tvö og í fyrsta sinn ;) Ég var eins og þú sjúklega stressuð með flest af því sem þú telur upp en nánast ekkert var neitt í líkingu eins erfitt og í fyrra skiptið (3 ár á milli barna). Vonandi verður það raunin hjá þér líka, ég trúi því sjálf algjörlega – líkaminn kann þetta núna, td brjóstin þín, þau taka við sér mun fyrr og meltining verður ekki með vesen heldur :) Reyndu eftir bestu getu að slaka á þessum áhyggjum þær eru svo vondar …

  2. Svart á Hvítu

    15. April 2015

    Gaman að lesa…. svo ótrúlega stutt síðan ég var í þínum sporum og upplifði margt svipað og var einmitt að kafna úr áhyggjum af alltof mörgu og endaði svo meðgönguþunglyndi.
    Flestar áhyggjurnar mínar reyndust svo óþarfar, en ég hafði t.d. miklar áhyggjur af því í hverju ég ætti að vera í fæðingunni (án grins), hvort ég gæti þolað hríðarnar og sársaukann, ef ég skyldi rifna og svo þetta nr.2 var alveg að fara með mig haha.
    Endaði nú með því að ég fór aldrei af stað, missti aldrei vatnið, fékk enga hríð og endaði í keisara!:)

    xSvana

  3. Edda Magnúsdóttir

    15. April 2015

    Hæ Erna. Ég hef heyrt að kókosvatn geti verið gott við sinadráttum. Og svo hef ég rendar líka heyrt að það sé gott við of háum blóðþrýsting, bakflæði og hægri meltingu! Ég veit svosem ekki hvort það er sniðugt að trekka eitthvað ótæpilega af því á meðgöngu, en þú bara googlar ef þú hefur áhuga :)

  4. María Rut Dýrfjörð

    15. April 2015

    Sæl Erna

    Ég mælli hjartanlega með lestri á bók sem heitir Ina May´s Guide to Childbirth, en hún er skrifuð af einni reyndustu ljósmóður Bandaríkjanna. Ina fjallar um gildi náttúrulegra fæðinga (án mænudeifingar) og í bókinni eru mjög margar fallegar fæðingasögur sem mér fannst gott að lesa á meðgöngunni. Það er pínu hippafílingur í henni, en það kom ekki að sök fyrir mína upplifun og lesturinn var sannarlega góður undirbúningur fyrir fæðingarnar mínar og ég var meðvitaðari um ýmsa þætti þeirra heldur en fyrir lesturinn. Ég á sjálf að baki tvær yndislegar fæðingar, sú fyrri með mænudeyfingu (barn í ennisstöðu) og þá seinni án mænudeifingar (barn í framhöfuðstöðu) og get því vottað að mænudeifing getur gert kraftaverk en líka að fæðing er ekki óyfirstíganleg án hennar. Ég óska þér góðs gengis og læt hér fylgja með amazonlink á bókina

    http://www.amazon.co.uk/Ina-Mays-Guide-Childbirth-Gaskin/dp/0091924154/ref=sr_1_1?s=books&ie=UTF8&qid=1429136643&sr=1-1&keywords=ina+may+gaskin

    • María Rut Dýrfjörð

      15. April 2015

      PS: Er sammála með númer 2. og brjóstagjöfina – en það er sannarlega yfirstíganlegt líka :)

      • Sunna Dís Másdóttir

        20. April 2015

        O, ég tek undir það – bókin hennar Inu May er dásamleg lesning, alveg sama hvort maður “ætlar” í mænudeyfingu eða fæðingu án verkjastillingar eða hvað. Mér leið eins og ég hefði lært meira um kvenlíkamann og fæðingarferlið af þeirri bók en öllu öðru á minni ævi.

  5. Sandra Vilborg

    16. April 2015

    Prófaðu mysu við sinadráttum – ég blandaði því í smoothie á morgnana – smá súrt en hverfur í bland við ávexti – og það virðist hafa virkað hjá mér – fékk það ráð hjá móður minni sem gerði það sama!

  6. Kristín Bergsdóttir

    16. April 2015

    Takk fyrir frábæran pistil, svo gaman að fá að fylgjast með og ég kannast við þetta allt :)
    Gangi þér vel

  7. Halla halldórsdóttir

    27. April 2015

    Sumt af þessu tengi eg við, en ég á tvö börn með 15 mánaða millibili og allt var erfitt með fyrsta barn og líklegast hef ég fengið fæðingarþunglyndi en var ekki greind enda talaði ég litið um það að mér fannst allt erfitt og mér leið ekki alveg eins og manni á að líða eftir að hafa eignast barn. En þvílíkur munur að eignast barn nr.2. Ég var miklu rólegri, fannst ég kunna allt, barnið drakk bara og svaf og svo eiga börnin mín voða góðan pabba sem eldaði góðan mat og gerði allt fyrir mig. Brjóstagjöfin var mun auðveldari enda kunni ég að setja barnið á brjóst og ég passaði mig mjög vel og fékk engin sár og varla nein óþægindi. Þannig að min reynsla er að það er betra að eignast barn nr.2 ;)