fbpx

Krem sem vekja húðina

Ég Mæli MeðFyrir eldri húðHúðLífið MittNetverslanirSnyrtibuddan mínSnyrtivörur

Ég hef oft talað um það að mér finnist þriðjudagar erfiðustu dagarnir – þá er vinnuvikan fyrst fyrir alvöru komin á fullt og ég er ekki alveg farin að sjá fyrir endann á henni. Í gær og í dag er ég heima með veikt barn – sumarflensan bankaði uppá þegar við hjónin áttum ekki alveg tíma fyrir hana svo öllu plani var umbilt.

Á svona þriðjudögum er húðin mín í rugli á morgnanna – ég var á fullu í allan gærdag heima með lítinn skæruliða, skrapp reyndar frá í makeup test fyrir tískusýningu á meðan amma mín passaði, fór svo auðvitað aðeins að taka til og tók upp nokkur sýnikennsluvideo sem þið fáið að sjá á næstunni. Já þreytan eftir þessa dagskrá sést langbest á húðinni minni, ég fæ svona gráa slekju yfir húðina og lít út eins og andlitið sé að bráðna niður… Lengi náði ég bara að bjarga húðinni með frísklegum förðum, bb eða cc kremum en nú er það undirstaðan sem bjargar.

Það er ekki langt síðan ég uppgötvaði tvö rakakrem sem vekja húðina mína en ég fékk einhver tíman fyrirspurn frá lesanda sem var að forvitnast um svona krem fyrir konur en einu vakningakremin sem við vissum báðar af voru fyrir karla:)

vakningakrem3

The Antidote Cooling Daily Lotion frá skyn Iceland – fæst hjá nola.is

Þetta er krem sem kælir samstundis húðina og það ilmar svo vel – mér finns ilmurinn af því líka vekja líkamann. Kremið er þó ekki gert til þess að vekja húðina heldur er það svona auka bónus! Þetta er einstaklega létt krem sem ég nota undir rakakremið mitt. Kremið kemur jafnvægi á húðina og er sérstaklega gott fyrir húð sem er undir miklu stressi (halló húðin mín!). Streita getur líka myndað umfram olíu framleiðslu í húðinni sem getur skilað sér í bólum og leiðindum þetta krem vinnur í því að koma jafnvægi á ástand húðarinnar og það er alveg dásamlegt – eins og allar vörurnar sem ég hef prófað frá skyn Iceland.

Olay Total Effects 7 in one Moisturiser + Wake Up Wonder

Þetta er ótrúlega létt krem og umbúðirnar utan um þær eru með pumpu og ein pumpa nær yfir alla húðina. Formúlunni er líka ætlað að draga úr sjö einkennum öldrunar í húðinni – fínum línum, raka, stinnleika, þreytu, draga úr sýnileika svitaholna, hjálpa húðinni að endurnýja sig og svo inniheldur það andoxunarefni sem vinna á móti sinduefnum. Þetta er krem sem maður tekur fram þegar húðin vaknar í skuggalega slæmu ástandi en það kælir líka aðeins og er rosalega mjúkt og þæginlegt. Þetta nota ég líka undir annað rakakrem. Olay vörurnar eru t.d. fáanlegar í verslunum Hagkaupa og eru á mjög góðu verði – kíkið endilega á þær.

vakningakrem2

Kremin eiga það bæði sameiginlegt að gefa húðinni fallega áferð og fallegan ljóma og með því auðvitað virðist húðin mun frísklegri og virðist vel vöknuð:)

Hér sjáið þið svo up close myndir af kremunum tveimur sem eru reyndar mjög ólík þrátt fyrir að eiga það bæði sameiginlegt að vekja húðina. Olay kremið er aðeins þykkara en það frá skyn Iceland sem er mun léttara, ég myndi segja að þau væru bæði mjög drjúg en umbúðirnar eru mjög misjafnar. Olay kremið kemur í 30 ml umbúðum og skyn Iceland kremið er í 50 ml umbúðum.

vakningakrem

Bæði kremin á að nota á hreina húð – það á auðvitað að þrífa húðina kvölds og morgna! Munið að setja líka aðeins niður á hálsinn til að gefa honum góða næringu líka.

EH

 

4 nýjar línur væntanlegar í MAC

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

7 Skilaboð

  1. Sigrún

    14. May 2014

    Mikið hljómar þetta vel! Er hægt að nota þetta undir augun líka eða myndi maður velja önnur krem í það? Ég vakna alltaf bólgin og þrútin undir augum á morgnana og finnst það svoooo leiðinlegt – what to do?!

  2. Rut R.

    14. May 2014

    En gaman að vita af þessu :)
    Ég einmitt nota bara L’oreal men expert Wake up herrakremið á morgnana til að vekja húðina mína. Virkar mjög vel sko… en ætli ég prufi ekki annaðhvor þessara næst :D

  3. Rut R.

    7. August 2014

    Loksins fann ég þessa færslu aftur :)
    hvoru kreminu mælir þú frekar með? hvor er með meiri kælingu og hressir andlitið vel við? :D

    kv Rut

    • Mér finnst Skyn Iceland kremið gefa meiri kælingu – elska líka ilminn af því svo frískandi og vekjandi fyrir vitin :)