fbpx

Jólalína OPI

neglurOPI

Hátíðarlínur snyrtivörumerkjanna eru handan við hornið. Ein sem ég býð ótrúlega spennt eftir er línan frá OPI sem inniheldur fullt af flottum lökkum í hátíðlegum litum!

Í ár ákvað OPI að halda áfram samstarfi sínu við söngkonuna Mariuh Carey en hún hannaði einnig hátíðarlínu síðasta árs.

Ég fékk þetta litaspjald til að sjá almennilega litina í línunni gefins frá OPI hér á Íslandi og ákvað að sýna ykkur þá eftir að mynd af Liquid Sand litunum sem ég setti inná Instagram sló í gegn um daginn!

jólopi2 opijólÉg á reyndar hrikalega erfitt með að velja liti sem mig langar að prófa – ætli ég endi ekki með alla línuna bara!

Það skemmtilega við þessa línu eru Liquid Sand litirnir sem eru alveg ótrúlega flottir í þessari línu. Svo eru alls konar glimmer yfirlökk, skemmtileg lökk með grófri áferð og að sjálfsögðu rauðir litir sem eru ómissandi í hátíðarlínur!

Ég lofa að láta ykkur vita þegar þessi eru mætt í búðir!

EH

EH

Jólagjöf förðunarfíkilsins

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Áslaug

    19. November 2013

    Liquad sand eru svo sniðug lökk, fail proof

  2. Aníta

    20. November 2013

    Ég get ekki beðið!! My favorite orniment verð ég að eignast um LEIÐ og það kemur til landsins! :)