fbpx

Jólagjöf förðunarfíkilsins

Ég Mæli MeðEstée LauderJólagjafahugmyndirmakeup

Svo ég haldi nú áfram að fræða ykkur um dýrindis gjafakassana frá förðunarmerkjum sem eru að fylla verslanir þessa dagana.

Ég tók smá andköf þegar ég sá þessa flottu tösku frá merkinu Estee Lauder. Fyrir hver jól sendir merkið frá sér eina veglega gjafatösku sem inniheldur fullt af flottum vörum frá merkinu en margar þeirra eru ekki fáanlegar í stöndunum.

Taskan í ár inniheldur, augnskuggapallettu, kinnalitapallettu, 3 varaliti, 2 glossa, maskara, augnhreinsi, augnkrem, eyeliner og naglalakk svo fylgir að sjálfsögðu taskan utan um þetta allt saman sem er í þessum fullkomna bláa lit! Ég held meirað segja að tölvan mín (macbook pro) ætti að passa í hana það sýndist mér alla vega:)

Estee-Lauder-Holiday-Gift-Set-2013-Promo Estee-Lauder-Holiday-Gift-Set-2013Taskan er á frábæru verði en verðið á henni er það sama og ef þið myndið kaupa 3 varaliti frá merkinu á fullu verði!! Ég veit að það eru margar konur sem bíða alltaf spenntar eftir gjafatöskunni frá Estee Lauder og næla sér alltaf í eina fyrir hver jól – pant vera ein af þeim núna.

Þessi er alla vega komin í Hagkaup Smáralind;)

EH

Verðlaunahafar - Bestu snyrtivörurnar

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Theodóra Mjöll

    19. November 2013

    úúú mig langar í svona! =)

  2. Sigrún

    19. November 2013

    Og hvað kosta 3 varalitir frá þeim? Væri gaman að vita verðið á þessari tösku :)

  3. Hófí Magnúsd.

    19. November 2013

    nei vá hvað mig langar í! :)