Hátíðarlínur snyrtivörumerkjanna eru handan við hornið. Ein sem ég býð ótrúlega spennt eftir er línan frá OPI sem inniheldur fullt af flottum lökkum í hátíðlegum litum!
Í ár ákvað OPI að halda áfram samstarfi sínu við söngkonuna Mariuh Carey en hún hannaði einnig hátíðarlínu síðasta árs.
Ég fékk þetta litaspjald til að sjá almennilega litina í línunni gefins frá OPI hér á Íslandi og ákvað að sýna ykkur þá eftir að mynd af Liquid Sand litunum sem ég setti inná Instagram sló í gegn um daginn!
Ég á reyndar hrikalega erfitt með að velja liti sem mig langar að prófa – ætli ég endi ekki með alla línuna bara!
Það skemmtilega við þessa línu eru Liquid Sand litirnir sem eru alveg ótrúlega flottir í þessari línu. Svo eru alls konar glimmer yfirlökk, skemmtileg lökk með grófri áferð og að sjálfsögðu rauðir litir sem eru ómissandi í hátíðarlínur!
Ég lofa að láta ykkur vita þegar þessi eru mætt í búðir!
EH
EH
Skrifa Innlegg