fbpx

Hylur eftir Guðrúnu Vald. og fleira fallegt úr Epal

Ég Mæli MeðFallegtÍslensk HönnunLífið Mitt

Ég kíkti við á opnun Hönnunarmars í Epal nú fyrir stuttu og þar hafði mikið af fólki safnast saman til að sjá nýjungar í hönnun. Það var fullt af flottum munum en að mínu mati stóð hönnun Guðrúnar Val. uppúr en það er skrifborðið Hylur. hönnunarmars7Ofboðslega fallega hannað borð og skemmtilegir sterku kontrastarnir í því. Ég væri mikið til í að eiga þetta fallega skrifborð en okkur vantar svona eiginlega nýtt borð undir borðtölvuna hans Aðalsteins en það er eiginlega bara að detta í sundur þar sem kisan okkar hefur það fyrir áhugamál að tálga borðfæturnar. HÉR getið þið lesið meira um borðið og séð fleiri myndir. Guðrún hefur hannað þónokkrar fallegar vörur hún gerði t.d. mjög fallegt dagatal sem þið sjáið hér á myndinni sem er fyrir neðan af borðinu, ég sýndi svo mynd af skemmtilegu jólaskrauti sem hún hannaði fyrir epal um jólin HÉR og svo heldur hún úti skemmtilegu bloggi sem þið finnið HÉR – en myndina fékk ég einmitt á blogginu hennar. gudrunvald_hylur1-web hönnunarmars6 Það reyndist ekkert sérlega auðvelt verk að dást að hönnunarvörunum með þennan litla töffara sem vildi bara hlaupa um þessa skemmtilegu verslun. Ég þarf eiginlega að kíkja aftur á sýninguna seinna svona barnslaus:) Annað sem stóð uppúr fyrir mér er hönnun Steinunnar Völu fyrir Hring eftir Hring ég er svo heilluð af fallegu postulínsfiskunum hennar en ég á einmitt einn svona. Ég rak svo augun í það að á nýjum týpum er búið að mála viðarkúluna hálfa svo hún minnir óneitanlega á flotholt – rosalega skemmtilegt:)   hönnunarmars5 hönnunarmars4 Mér finnst fluguarmböndin og þetta einfalda viðarperluhálsmen hér fyrir neðan alveg æðisleg – komin á óskalistann minn og heimsókn á vinnustofuna hennar Steinunnar er sett á dagskrá sem fyrst! hönnunarmars3 Svo var Hryggur viðarbindið sem vöruhönnuðurinn Jón Helgi Hólmgeirsson hannaði fyrir Hring eftir Hring líka til sýnis. Virkilega falleg og skemmtileg hönnun sem ég þarf að fá tíma til að skoða betur. hönnunarmars2 Svo finnst mér þessar skýjahillur alveg ótrúlega fallegar – fullkomnar inní barnaherbergi á fallega málaðan vegg. Hillurnar eru eftir Herdísi Björk sem hannar undir merkinu Bimbi – meira HÉR. Virkilega flott hönnun og flott hvernig er passað uppá að þær séu nógu háar að framan svo það sé hægt að setja t.d. stórar bækur án þess að það sé mikil hætta á að þær falli fram yfir. Mig langar í svona þegar Tinni Snær fær sér herbergi. hönnunarmars

Fegurð

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Karen Lind

    26. March 2014

    Æðislegt borð…

    … og skemmtilegar skýjahillur :)

  2. Jónína Þóra

    26. March 2014

    Þessar dásamlega fallegu skýjahillur eru eftir hönnuðinn Herdísi Björk… hún er með heimasíðuna herdisbjork.is ;)

  3. Gerður

    26. March 2014

    Veistu hvað borðið kostar? :-)

    • Nei því miður, vonandi sér Guðrún þetta og getur kannski svarað þér ef verðið er komið á hreint :):)

  4. Vala Guðmundardóttir

    26. March 2014

    Skýjahillurnar eru eftir Herdísi Björk Þórðardóttur og hannar undir merkinu Bimbi

  5. Hjördís

    26. March 2014

    vá! mig langar í svona skýjahillur!