fbpx

Hátíðisdagur!

Lífið Mitt

9. apríl ár hvert er stór dagur í lífi föðurfjölskyldunnar minnar – þá á litli bróðir pabba míns afmæli og í ár fagnar hann 40 árum. Að því tilefni langaði mig að heiðra hann smá í dag og þess vegna klæðist ég þessum flotta bol.

„Keep calm it’s only an extra chromosome“

Hann frændi minn er með einn svona auka litning. Mér hefur þó aldrei fundist það stoppa hann í neinu sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Hann hefur til að mynda keppt á Special Olympics og komið heim með verðlaun, farið á ófáa Arsenal leiki, verið með uppistand á Bessastöðum og svo er hann líka besti frændi sem hægt er að óska sér. Reyndar er hann sérstaklega góður í því að gefa litlu frænkum sínum og frændum hávaðasöm leikföng til að stríða foreldrunum aðeins svo ég fæ eflaust að finna fyrir því á næstu árum!

Til hamingju með daginn þinn elsku Siggi Valur við litla fjölskyldan sendum þér knús og kossa í tilefni dagsins!

EH

Síðustu vinningshafar #trendvarir taka tvö!

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. loa

    9. April 2013

    hjartanlega til hamingju með Sigga Val:) knúsaðu hann frá mér:)***

  2. Saga*

    11. April 2013

    Greinilega flottur hann frændi þinn! Hann á allaveganna flottasta afmælisdaginn! ;)

    • Já hann er það svo sannarlega! Þið eruð bæði heppin að deila svona flottum degi með hvort öðru;)