fbpx

Hátíðarneglur #5

JólagjafahugmyndirneglurOPI

Ég er algjörlega sjúk í Liquid Sand naglalökkin úr hátíðarlínu OPI og Mariuh Carey. Í dag er ég með rósagylltan lit en um daginn var það þessi lillablái sem átti hendurnar. Ég er alltaf spurð útí hvaða lakk ég er með þegar ég er með Liquid Sand naglalökk – klárlega einhver flottustu naglalökkin sem eru til í dag.

liquidsandhátíð

Naglalakk: OPI, Baby Please Come Home

Það besta við að vera með Liquid Sand lökk er að þau þorna á no time! Ég set tvær umferðir af naglalakki og alltaf undirlakk undir þau því það er auðveldara að ná því af þannig.

Ef ykkur líst vel á lökkin úr hátíðarlínu OPI þá myndi ég hafa hraðar hendur á því þau eru að seljast mjög hratt var ég að heyra. Settið sem ég sýndi ykkur um daginn HÉR er víst bara alveg að verða búið og uppselt á mörgum sölustöðum.

mbk

EH

2. tbl Reykjavík Makeup Journal

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Viktoria

    13. December 2013

    Þessi lökk eru svo ótrúlega falleg ég er algjör OPI fíkill og stökk á eitt stórt og náði einum pakka hlakka einmitt til að prófa þetta, mjög leiðinlegt hvað kom lítið til landsins af hátíðarlínunni.

    • Reykjavík Fashion Journal

      13. December 2013

      Þau eru æði! Reyndar kom sko slatti – meira en í fyrra þessi tiltekna lína virðist nú bara hafa höfðað svona vel til landans ;)

  2. Birgitta

    13. January 2016

    Getið þið sett myndir af ljòsum litum sem eru soldið glærir ekki alveg þekjandi