fbpx

2. tbl Reykjavík Makeup Journal

Ég Mæli MeðLífið MittMakeup Artist

Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað síðustu dagar hafa einkennst af miklu stressi. Blaðið átti upphaflega að koma út í síðustu viku en veikindi allrar fjölskyldunnar komu í veg fyrir að það væri hægt að gera það. Í nótt kom 2. tbl Reykjavík Makeup Journal út – 126 síður stútfullar af efni. Því miður var ein umfjöllun sem ekki komst fyrir í blaðinu en ég mun birta hana hér á síðunni í staðin en það var ítarleg umfjöllun um sjálfbrúnku.

Ég er hrikalega sátt með blaðið og þá sérstaklega myndaþáttinn enn ég fékk Hagkaup í lið með mér við gerð hans. Við Aldís Pálsdóttir ljósmyndari og Anna Þóra fyrirsæta hjá Eskimo eyddum heilum degi í Hagkaup Smáralind þar sem við gerðum 7 mismunandi hátíðarfarðanir og sýnikennslur fyrir þær allar! Þetta var langur dagur sem fór líka í smá stress um hvort að jakkinn sem átti að vera á forsíðu blaðsins myndi rata til okkar áður en að dagurinn væri liðinn. Þessi glæsilegi pallíettujakki sem er frá Selected náði til okkar tæka tíð um klukkan 6 ef ég man rétt og þá var forsíðan klár. Einnig fékk ég afnot af ljósmyndara Hagkaupa honum Binna sem tók allar jólagjafahugmyndirnar. Ég eyddi mörgum klukkutímum í Hagkaup Holtagörðum og stúdíóinu hans við að velja vörur, flokka þær saman og stilla svo upp. Ég labbaði útúr Hagkaupum með snyrtivörur fyrir rúma milljón…!

Í blaðinu finnið þið sjö sýnikennslur fyrir hátíðarfarðanir frá jafnmörgum snyrtivörumerkjum. Ég reyndi að fanga einkenni hvers snyrtivörumerkis í förðununum og ég er mjög ánægð með útkomuna. Í blaðinu finnið þið líka fullt af viðtölum – meðal annars er skyggnst í snyrtibudduna hennar Karenar Lindar sambloggara míns á Trendnet. Svo eru umfjallanir um rauða varaliti, eyelinera, krullujárn primer-a og svo margt margt fleira.

Blaðið finnið þið hér – reykjavikmakeupjournal.is

Hér sjáið þið brot af því sem er í boði….

Screen Shot 2013-12-13 at 1.01.09 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.58.06 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.58.19 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.58.28 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.58.46 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.59.01 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.59.33 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.59.45 PM Screen Shot 2013-12-13 at 12.59.55 PM Screen Shot 2013-12-13 at 1.00.10 PM Screen Shot 2013-12-13 at 1.00.21 PM Screen Shot 2013-12-13 at 1.00.37 PM

Góða skemmtun við lesturinn – athugið að þið gætuð þurft að taka ykkur smá pásu þetta eru dáldið margar blaðsíður;)

EH

Heima hjá mér

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Gerður Guðrún

    13. December 2013

    Innilega til hamingju með annað flott tölublað af Reykjavik Makeup Journal !!

  2. loa

    13. December 2013

    Innilega til hamingju elsku frænku dís, frábært! <3

  3. Vigdís

    13. December 2013

    Pása frá lærdómi til að lesa í kvöld :)
    Hlakka til..
    Til hamingju elsku snillingur ***

  4. Ása Regins

    13. December 2013

    Nú er ég búin að koma mér vel fyrir í sófanum.. og hefst nú lesturinn.. ahhh.. dásamlegt :-)

  5. Snædís Ósk

    14. December 2013

    Til hamingju með þetta æðislega flott blað! Þú ert ótrúleg :**