fbpx

Gjafaleikur: OPI & Coca Cola #trendlight

Ég Mæli MeðneglurOPITrend

Eins og ég var nú búin að slúðra um þá er komið að því að gefa eina af flottustu naglalakkalínum sem hefur komið hjá OPI – að mínu mati ;) Nú er komið að því að setja af stað smá gjafaleik og gleðja lesendur sem eru til í að gera smá í staðin fyrir mig og þessi flottu vörumerki.

OPI línan inniheldur 9 mismunandi naglalökk sem eru hvert og eitt innblásin af vinsælum gosdrykkjum frá Coca Cola – hér sjáið þið litina flottu. Ég á þrjá og mig langar helst samt í alla – já ég er sjúk í naglalökk!

opi-coca-cola-coke-collection

Eins og þið urðuð eflaust varar við í síðustu viku þá var ég svo innblásin af línunni að ég varð að gera eitthvað skemmtilegt og skellti því í mini myndatöku fyrir utan heima hjá mér. Kallinn var sendur útí búð að kaupa Coca Cola drykki í gleri – ég fann rör ofan í skúffu, skellti á mig varalit (Viva Glam Rihönnu liturinn frá MAC) og augnskugga og Aðalsteinn tók myndirnar. HÉR getið þið séð allar myndirnar.

opikóksamsett2

Hér fyrir ofan sjáið þið uppáhalds litina mína – Coca Cola rauða litinn og silfurlitaða Coca Cola Light litinn.

Ég fæ að vera svo sjúklega heppin að gefa 6 lesendum glaðning frá OPI og Coca Cola en þessir 6 lesendur fá kassa af Coca Cola Light og tvö lökk úr OPI línunni. Persónulega væri ég til í að eiga alla liti mig langar næst að næla mér í hologram grænalitinn sem er í anda Sprite drykksins, Cherry liturinn er líka dásamlegur.

Það sem þið þurfið að gera til að eiga kost á því að fá ein af verðlaununum er að merkja ykkar skemmtilegu tískumóment á Instagram með #trendlight. Mér fannst skemmtilegt að nota þessa merkingu þar sem þetta er ekki í fyrsta sinn sem við á Trendnet hvetjum ykkur til þess og ólíklegt að það sé í það síðasta.

Svo munið um helgina að merkja ykkar myndir með #TRENDLIGHT! þá gætuð þið átt kost á fallegum lökkum fyrir sumarið og frískandi Coca Cola Light.

Ég hlakka til að fylgjast með en á þriðjudaginn ætla ég að velja skemmtilegustu 6 myndirnar að mínu mati. Þetta verður bara fjör og ég hlakka til að fylgjast með Instagraminu um helgina.

EH

Í miðlum

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Lísa Dögg

    6. July 2014

    Þessi appelsínuguli glimmer (Orange You Fantastic) hefur ekki komið, eða ég hef allavega ekki séð hann. Hins vegar kom annar sem er appelsínugulur og heitir Orange You Stylish ;)

    • Já litirnir voru aðeins öðruvísi í evrópu og usa – þetta er mynd af usa litunum (smá klúður hjá mér;)) í usa heitir líka silfraði liturinn annað en í evrópu:)

  2. Hulda

    9. July 2014

    Ertu búin að velja vinningshafa? :)