fbpx

Fríhafnardagar

Lífið MittmakeupSnyrtivörur

Við snyrtivörufíklarnir við elskum þegar það eru Fríhafnardagar í verslunum Hagkaupa – sem eru einmitt núna um helgina. Afsláttardagarnir hefjast í dag og eru út 28. október. Um að gera að næla sér í góðar snyrtivörur á frábæru verði. Þetta er líka gott tækifæri til að hefja jólagjafainnkaup ef þið eruð búin að ákveða eitthvað í þeim efnum.

1375300_10151649988030373_903418562_nÞess má geta á 95% af snyrtivörunum sem ég tek fyrir í Reykjavík Makeup Journal – skoðið blaðið HÉR – fást einmitt í verslunum Hagkaupa. Það er sniðugt að vera með smá innkaupalista yfir það hvað ykkur vantar í snyrtibudduna áður en þið farið að versla inn. Bara til að passa uppá það að þið kaupið þá alla vega það sem ykkur vantar – aukaglaðningar mega svo alltaf fylgja með í pokann að sjálfsögðu.

Screen Shot 2013-10-21 at 11.22.45 AMMaður getur alltaf á sig snyrtivörum bætt – er það ekki ágætis mottó ;)

EH

Augnskuggalúkk

Skrifa Innlegg