fbpx

Fjólubláar Jólavarir frá Maybelline

Ég Mæli MeðmakeupMaybellineVarir

Fjólublái varaliturinn frá MAC sem ég sýndi ykkur um daginn seldist ansi hratt upp… Ég er búin að fá þónokkrar fyrirspurnir um annan flottan fjólubláan varalit svo ég varð að sýna ykkur þennan frá Maybelline.Þessi litur er búinn að vera í miklu uppáhaldi hjá mér í langan tíma og ég gríp venjulega í hann þegar ég fæ valkvíða um hvaða varalit ég á að nota og hef eins notað hann mikið í verkefnum. Varaliturinn gefur þétta áferð og sterkan lit, hann inniheldur góðan raka svo varirnar þorna ekki upp og eins er auðvelt að bera hann beint á varirnar því hann rennur bara á.

Varalitur: Maybelline – 338 Midnight Plum

Hér sjáið þið Andreu Röfn með sama varalit í myndatöku sem ég farðaði fyrir Oroblu fyrir nokkrum árum síðan. Elísabet tók bæði myndirnar og stíliseraði – frekar flottur litur það finnst mér alla vega;)

EH

Dýrindis Púðar

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Auður

    5. December 2012

    Setur þú ljósan varablýant í kringum varirnar þegar þú setur á þig varalit?
    Og notar varablýant undir varalitinn?

    OG að lokum, ef þú gerir það, hverskonar varablýanta myndiru segja rookie að fá sér til að geta gert flest look án þess að eyða aleigunni?

    • Reykjavík Fashion Journal

      5. December 2012

      hæhæ:) – já undir alla varalitina sem ég er búin að stinga uppá fyrir jólin er ég búin að nota ljósbrúnan varablýant frá Shiseido og svo ljósan hyljarablýant til að ramma betur inn varirnar – ég sé það núna að ég máði litinn ekki nógu vel hér, smá fljótfærni;) Báða blýantana set ég á varirnar áður en ég set varalitinn á.

      En þá mæli ég með varablýöntunum frá Maybelline – þar geturðu fengið alla liti og þeir eru á mjög góðu verði;)

  2. Sigríður

    5. December 2012

    Vá vá æðislegur liturinn!

  3. Elísabet Gunnars

    5. December 2012

    Elska Maybelline varalitina….

  4. Maggý

    12. February 2013

    Hvernig varablýant ertu með undir þessum varalit? ég á þennan lit en finnst hann ekki nærrum því jafn flottur og á þér á þessari mynd :)