fbpx

Brúnar neglur

Ég Mæli MeðneglurNýtt í snyrtibuddunni minniOPI

Ég kolféll fyrir þessum fallega brúna lit úr San Francisco línunni frá OPI! Mér finnst hann æðislegur svo heill og þéttur og alveg nóg að setja bara eina umferð og svo yfirlakk. Ég hlakka til að prófa þennan með matta yfirlakkinu mínu. Ég hef alltaf verið mikið fyrir ekki þessi týpískt lituðu naglalökk meira fyrir svona skrítna liti. Mæli hiklaust með þessum lit sem heitir A-Piers to be Tan.

Litnum er fínt að lýsa sem dökkum/kremuðum lit og mér finnst hann fullkominn fyrir haustið. Hann passar við allt að mínu mati og hann er ekki alveg æpandi svo hann mun aldrei stela athyglinni eða stinga í augað.

Allir litirnir í línunni eru innblásnir af kennileitum San Francisco. Ég er mjög hrifin af litnunum og langar helst í fleiri – bláu litirnir heilla mig líka.

Ég er búin að vera núna í því að umbreyta förðunartöskunni minni (sem er ferðataska;)) yfir í haustið. Nú þurfum við aðeins að fara að skipta úr sumarlitunum yfir í haustlitina og ég er að vinna í umfjöllun um leiðbeiningar fyrir ykkur í þeim efnum.

EH

Múgæsing?

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Sigríður

    12. September 2013

    fór og keypti mér þennan eftir að hafa lesið þessa færslu. Ótrúlega ánægð !
    Takk fyrir mig :)