fbpx

Múgæsing?

Ilmir

Á nokkurra ára fresti kemur fram tónlistarhópur sem samanstendur af myndarlegu ungum strákum sem gerir allt vitlaust! Fyrir mína kynslóð voru það klárlega Backstreet Boys en núna eru það strákarnir í One Direction sem fanga athygli, hug og hjörtu. Ég viðurkenni það reyndar fúslega að ég er skotin í þeim öllum – sérstaklega Harry!

Í dag verður ilmur þeirra One Direction – Our Moment frumsýndur í Hagkaup Smáralind klukkan 15:00. Miðað við stemminguna sem myndaðist á forsýningu myndar þeirra um daginn – sjá meira HÉR – þá verður gaman að sjá hvernig ástandið verður í Smáralindinni í dag.

1233475_662306193780432_39496996_nUmbúðir ilmsins eru þaktar myndum af drengjunum fimm og pakkningin inniheldur eiginhandaráritanir þeirra. Ég heyrði það um daginn að erlendis hefði skapast smá vandamál þar sem einginhandaáritunum væri stolið úr pakkningunum:)

Ég kjaftaði því ekki fyrir svo löngu síðan að þegar þetta lag hér með strákunum kæmi í útvarpinu þá hækkaði ég í botn og syng hástöfum með – það geri ég enn.

Ég hlakka til að segja ykkur meira um ilminn og vonandi sýna ykkur myndir frá stemmingunni í Smáralind.

EH

Á allra vörum

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Hildur

    6. September 2013

    Orðið er múgæsing, semsagt kvenkynsnafnorð :)

  2. Hilrag

    6. September 2013

    ég er svo vandræðalega skotin í harry! haha

    góða skemmtun á morgun ;)

    xx