fbpx

Bianco: vinningshafar og Camilla Pihl

Ég Mæli MeðFallegtLífið MittNýtt í FataskápnumShop

Jæja nú er undirrituð að skríða saman, hún er alla vega komin með nóg af þessum veikindum og er aðeins búin að geta setið við tölvuna og unnið og skrifað svo nú er komið að því sem margar bíða eftir vinningshöfunum í gjafaleiknum mínum og minni uppáhalds skóverslun Bianco. Þar sem ég gef ekki svona auðveldlega frá mér vil ég fyrst byrja að segja ykkur frá skemmtilegum fréttum úr búðinni fögru sem hóf sölu á nýrri samstarfslínu sinni og stjörnu bloggarans frá Noregi Camillu Pihl. Þetta er önnur línan sem daman hannar en sú fyrri var virkilega vel heppnuð og ég á tvö pör úr þeirri línu og þeir eru þeir skór sem ég nota hvað mest. Í nýju línuni eru 5 pör en enn sem komið er eru bara 2 komin til landsins en önnur væntanleg…

997049_900660943287553_5581379152533686032_n

Skórnir eru sérstaklega glæsilegir en Camilla er þekkt fyrir einstaklega góðan stíl. Stíllinn hennar er mjög einfaldur og skandinavískur mér finnst það vera lýsingarorð sem nær bæði yfir fatastíl og innanhúshönnun! Skórnir eru í takt við það þetta eru þó allt skór sem eru elegant, einfaldir en allir með eitthvað við sig sem dregur athygli manns að þeim.

11066019_897050596981921_1321559738776797917_n

Þessum féll ég kylliflöt fyrir, ég mátaði þá að sjálfsögðu um leið og þeir komu og að stíga inní leðrið góða og labba um á skónnum var eins og að svífa um á skýji, þetta er alveg dásamlegt. Svona flatbotna elegant eiginlega herraskór hafa verið áberandi meðal kvenna síðustu misseri og eitt svona par bráð nauðsynlegt fyrir vorið að mínu mati – eruð þið að heyra réttlætinguna sem ég er byrjuð að fara með fyrir sjálfa mig, ykkur já og kannski Aðalstein… ;)

10152526_900660483287599_3735375014781013283_n

Þvílíkar gersemar – ég er ástfangin af áferðininni í rússkinninu og það er eins gott maður verji þá vel með góðu spreyji.

11081255_900660626620918_6738534538686002734_n

Svo eru það sandalarnir – réttlætingin fyrir þeim kaupum er ekki komin en ég á stærðina mína frátekna, um leið og sólin skín kemur þetta… ;)

10423882_897050690315245_1865486745340231779_n

Mér finnst þeir æði. Úr góðu efni svo flottur botninn í þeim svo það er rosa gott að labba í þeim svo þeir henta vel í borgarferð til heits lands í sumar – já líka fyrir óléttar konur.

Persónulega var ég fallin fyrir sandölunum en Elísabet sannfærði mig um að prófa hina þá reimuðu og þaðan var ekki aftur snúið þá tók ég heim með mér sjúklega flotta innpakkaða með sérstökum Bainco by Camilla Pihl borða – gerist varla flottara. Nú þarf ég að finna gott sprey til að vernda rússkinnið og ef gæði hinna paranna sem ég á frá Camillu er einhver vísbending um hvernig þessir verða þá veit ég að ég verð sko ekki fyrir vonbrigðum…

Eitt af því sem ég er hrifnust af varðandi nýju línuna er merkingin – það liggur við að ég sendi hina skónna mína út og biðji Bianco vinsamlegast um að merkja þau pör líka. Ég elska þetta….!

biancocamilla2

En þá er komið að því loksins að kynna sigurvegarana í gjafaleiknum mínum og Bianco. Mig langar að byrja á að þakka fyrir frábæra þáttöku, ég er eiginlega bara enn í smá sjokki yfir þessum dásamlegu móttökum og mikið vildi ég að ég gæti glatt fleiri með skóm en ég hvet ykkur til að kíkja til hennar Elísabetar minnar í Bianco á ykkar draumaskó því verðin eru ekki slæm!

En hér sjáið þið þá fyrstu og svo fylgir með mynd af skónnum en ekki hvað!

Screen Shot 2015-03-24 at 10.01.42 PM biancoleikur2

 

Svo er það…

Screen Shot 2015-03-24 at 10.05.23 PM biancoleikur4

Mikið vona ég að Heiða og Ásta Marý verði ánægðar með nýju skónna sína sem bíða þeirra inní Bianco í Kringlunni!! Ef þið þekkið dömurnar vona ég að þið látið þær vita af þessum glaðning svo hann fari alls ekki framhjá þeim.

Annars er greinilegt að ég verð að gefa fleiri skópör ég og þið eigum eigum það greinilega sameiginlegt að bera mikla ást til þessara fullkomnu fylgihluta!

EH

Meðganga, taka tvö!

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

5 Skilaboð

  1. Sara

    25. March 2015

    Eru þessir skór actually til í stærri stærðum en nr. 41? Allir þessir skór sem eru framleiddir ódýrt í Kína en koma bara í pínulitlum stærðum er svo glórulaust…

    • Sæl :) Þessir fallegu skór í Camillu Pihl línunni eru framleiddir í Portúgal úr hágæðaefnum og stærðirnar eru mjög góðar og ég tek alltaf mínar stærðir í skóm frá Bianco svo ég get alveg sagt þér að þessar stærðir eru ekki pínulitlar :);)

  2. Heiða Pétursdóttir Dam

    26. March 2015

    Ég þakka kærlega fyrir mig! Skórnir eru alveg trylltir og ótrúlega þægilegir.
    Þúsund þakkir