fbpx

BB krem fyrir líkamann

Ég Mæli MeðHúðMakeup TipsNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minni

Já þið lásuð rétt það er komið BB krem fyrir líkamann!! Í stuttu máli þá er hér á ferðinni bodylotion með smá lit í og eins og gengur og gerist um BB kremin þá eru tveir litatónar og þið veljið þann sem hentar ykkur.

Hér sjáið þið brúsana… Ég skrifaði um Masterline húðvörurnar fyrir stuttu HÉR en það sem er svona helsti kosturinn við þær eru að þær eru paraben fríar.

bbhúð3Hér sjáið þið litina tvo sem eru fáanlegir sá ljósi er auðvitað vinstra megin en sá dökki hægra megin. Það lá augum uppi að ég prófaði þann ljósari en hann hentar mínu litarhafti betur. Mögulega myndi ég nota dekkri litinn þegar ég er búin að vera aðein duglegri með sjálfbrúnkukremin fyrir sumarið.

Eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir neðan þá er þetta ekki krem sem er endilega ætlað að dekkja húðina mikið heldur til að jafna litarhaft húðarinnar og gera hana yfirborðsfallegri alveg ein og bb kremin gera fyrir andlitið. Kremin gefa húðinni líka frísklega áferð og ég held að það sé upplagt að nota þau líka til að einmitt fríska uppá húðina þegar hún er aðeins búin að vera útí sólinni og jafna þannig roðann og næra húðina í leiðinni.

bbhúð

Ég elska svona pumpuumbúðir eins og eru með þessum kremum það er bara svo miklu þæginlegra að nota kremin og fínt að stilla þeim upp á snyrtiborði, ná sér í smá krem og bera á líkamann. Kremið er hugsað fyrir allan búkinn og sniðugt til að bera á fótleggina þegar þið eruð í kvartbuxum eða berleggja í léttum kjól eða pilsi. Ég er aðeins búin að vera að prófa mig áfram með kremið og mér finnst það ekki smita út frá sér en svo skolaði ég það bara af húðinni í sturtu. Þetta er auðvitað bara bodylotion með raka í og smá lit svo þetta er næring fyrir húðina um leið og það gefur fallegan lit. Mér finnst liturinn vera ótrúlega raunverulegur þar sem hann leggst svona fallega saman við húðina einhvern veginn allt öðruvísi heldur en sjálfbrúnkukrem gera. Ég held að þessi krem séu líka tilvalin fyrir allar sumarbrúðirnar ;)

Þetta er svona krem sem er möst have til að koma húðinni í gott stand fyrir sumarið – stór færsla tileinkuð þeim vörum er einmitt í bígerð!

Ætli BB krem fyrir húðina sé það sem koma skal… :)

EH

Fataleikur í Esprit

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Hera

    28. May 2014

    Þarf að bíða eftir litnum eða kemur hann strax ? :)
    og er þessi týbíska brunkukremslykt af þessu ?

  2. Kamilla

    29. May 2014

    Ég var að pæla hvort þú vissir hvar ég gæti fundið fallegt ljósblátt naglalakk? Svona blár eins og er svo vinsæll núna :)

      • Kamilla

        30. May 2014

        Já ég keypti hann einmitt í dag, hann er fullkominn! :)

  3. Laufey

    29. May 2014

    Hvar fást þessi BB krem?