fbpx

Ástfangin af fjólubláum vörum

Ég er svo ótrúlega hrifin af fjólubláum varalitum – ég féll því kylliflöt um leið og ég sá þennan hér frá Dior….

Screen Shot 2013-09-19 at 9.17.14 PM

Liturinn heitir Mysterious Mauve og er úr nýrri og endurbættri varalitalínu Dior. Dior varalitirnir hafa alltaf reynst mér vel. Þeir gefa þétta áferð og jafnan, þéttan lit.

Þessi litur kemur sterklega til greina sem varalitur kvöldsins í árs afmælisfögnuði Trendnets. Ég held að hann muni fara vel með nýja hárinu – hvað segið þið?

Screen Shot 2013-09-19 at 9.17.24 PM

Að lokum hvet ég ykkur til að tékka á þessum lit næst þegar ykkur vantar nýjan áberandi varalit!

EH

Sýnikennsluvideo Kinnalitur

Skrifa Innlegg